Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Eiður Þór Árnason skrifar 14. júní 2026 20:55 Oliver Tree kom fram á Coachella-tónlistarhátíðinni í Kaliforníu í apríl. Getty/Matt Winkelmeyer Bandaríski tónlistarmaðurinn Oliver Tree er látinn, 32 ára að aldri. Hann fórst í þyrluslysi í Rio de Janeiro í Brasilíu. Tree er þekktur fyrir lög á borð við Life Goes On, When I'm Down og Miss You.
Slysið er sagt hafa átt sér stað á sunnudagsmorgun í suðvesturhluta Rio de Janeiro þegar tvær þyrlur rákust saman. Sex hafi látist og var Tree þeirra á meðal. Variety greinir frá þessu og vísar í umfjöllun CNN Brazil. Tree birti síðast efni frá ferð sinni í Brasilíu á samfélagsmiðlum í gær. Tree vakti athygli árið 2016 þegar hann kom fram í vinsælu lagi bandaríska tónlistarmannsins Whethan. Hann náði svo flugi með stuttskífunni sinni Alien Boy sem kom út árið 2018 og varð bæði áberandi í raftónlistarsenunni og netheimum. Hann átti eftir að byggja upp stóran aðdáendahóp á samfélagsmiðlum og einkum á TikTok þar sem hann var með 15,4 milljónir fylgjenda. Tree var á tónleikaferðalagi um heiminn til að fylgja eftir fjórðu hljóðversplötunni sinni sem ber heitið Love You Madly, Hate You Badly. Túrinn hófst í Mexíkóborg þann 30. maí og átti hann meðal annars eftir að koma við í Kína, Japan, á Suðurskautslandinu, Nýja-Sjálandi og í Suður-Afríku.
Andlát Tónlist Bandaríkin Flug Hollywood Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira