Fullyrti að samkomulag yrði undirritað og sundið opnað Eiður Þór Árnason skrifar 13. júní 2026 23:50 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á ótengdum viðburði á fimmtudag. AP/Jacquelyn Martin Íran og Bandaríkin hafa aldrei verið jafn nálægt samkomulagi um endalok stríðsins, að sögn fulltrúa Pakistans sem hafa milligöngu um friðarviðræður ríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti að samkomulag yrði undirritað á morgun en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma.
AP-fréttaveitan greinir frá þessu og segir að fulltrúar Íran hafi sjaldan gefið út jafn bjartsýnar yfirlýsingar. Einungis tveir dagar eru síðan Trump hótaði að gera öflugar árásir á Íran og hernema Kharg-eyju. Þeim árásum var síðan aflýst sama dag. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. Trump hefur sagt að hið mikilvæga Hormússund verði opnað strax eftir undirritun friðarsamkomulags. Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, sagði fyrr í dag að gert væri ráð fyrir að samkomulag yrði frágengið á næstu 24 klukkustundum. Utanríkisráðuneyti Pakistans sagði jafnframt að fyrirhuguð undirritunarathöfn væri áætluð á morgun, sunnudag, en veitti ekki frekari upplýsingar. Á sama tíma hafði ríkismiðill eftir Esmail Baghaei, talsmanni íranska utanríkisráðuneytisins, að undirritunin „muni ekki eiga sér stað á morgun“, en „líkurnar á því að gengið verði frá viljayfirlýsingu á næstu dögum séu miklar“. Íbúar synda í Hormússundi á meðan skipaumferð er stöðvuð. AP/Razieh Poudat Brothætt vopnahlé hefur verið í gildi í Íran frá 7. apríl og ríkin skipst á árásum. Á síðustu vikum hefur Trump ítrekað fullyrt að stjórnvöld væru nálægt samkomulagi. Íran hefur sýnt varfærni í samningaviðræðunum og bent á að fyrri viðræður við Bandaríkin sem fóru fram á síðasta ári og í byrjun þessa árs hafi ekki komið í veg fyrir árásir Bandaríkjanna og Ísraels. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur sagði fyrr í dag langt frá því að friður væri í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Trump muni ræða jarðsprengjuhreinsun í Hormússundi AP segir gert ráð fyrir að Trump muni ræða jarðsprengjuhreinsun í Hormússundi á leiðtogafundi G7-ríkjanna sem hefst á mánudag. Nafnlaus háttsettur bandarískur embættismaður sagði að Trump hygðist funda með leiðtogum Egyptalands, Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmanna þar til að ræða leiðir til að binda enda á stríðið. G7-ríkin Bretland og Frakkland hafa lýst yfir áhuga á því að aðstoða við jarðsprengjuhreinsun þegar átökum linnir. Íran hefur meira og minna stjórnað umferð um Hormússund frá því að stríðið hófst og nánast stöðvað olíu- og jarðgasflutninga frá Persaflóa. Bandaríkin hafa brugðist við með því að setja íranskar hafnir í herkví og þannig reynt að auka þrýstinginn á íranskan efnahag með því að koma í veg fyrir útflutning. Kjarnorkumálið sagt enn óleyst Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði að viljayfirlýsingin sem væri til umræðu snerist um að binda enda á stríðið og á þessu stigi hefði verið ákveðið að engin umræða færi fram um úranbirgðir Írans. Kjarnorkuáætlun landsins og auðgað úran hefur lengi verið eitt helsta deiluefni stjórnvalda við Bandaríkin og Ísrael. Trump fullyrti á samfélagsmiðlum að „þegar allt er orðið rólegt“ myndu Bandaríkin fara inn og „þynna út og eyða“ auðgaða úraninu innan landamæra Íran eða í Bandaríkjunum. AP-fréttaveitan segir að hreyfing hafi komist í viðræður ríkjanna eftir að Íran skiptist á árásum við Bandaríkin og Ísrael fyrr í þessari viku. Hótuðu stjórnvöld að binda enda á vopnahléið og steypa Miðausturlöndum aftur í allsherjarstríð. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, birti í gær færslu á X, áður Twitter, þar sem hann sagði að „það hafi aldrei verið jafn stutt“ í samkomulag. Trump fullyrti á fimmtudag að verulegur árangur hefði náðst í samningaviðræðum, einungis klukkustundum eftir að hann hótaði að taka yfir olíuiðnað Írans.
Íran Ísrael Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira