Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Lovísa Arnardóttir skrifar 12. júní 2026 13:53 Veikindi Jóns Atla voru algjörlega óvænt. Myndin til hægr er tekin í desember eftir að hann fór í aðgerð á heila til að fjarlægja hluta meinsins. Aðsendar Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn Jóns Atla Magnússonar um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis. Jón Atli Magnússon greindist í desember með eitt banvænasta krabbamein sem fyrirfinnst. Eiginkona hans segir baráttu þeirra þó ekki lokið. Um sé að ræða réttlætismál fyrir alla sem greinast með þetta banvæna krabbamein.
Hann fékk nýlega synjun frá Sjúkratryggingum um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis sem gæti lengt lífslíkur hans og var vísað til þess að ekki væri talið að um „brýna nauðsyn“ að ræða. Rætt var við eiginkonu Jóns Atla fyrr í vikunni, Ilmi Dögg Níelsdóttur, sem sagði þau þegar búin að tapa dýrmætum tíma í baráttu sinni og óttast að börnin þeirra missi föður sinn fyrr en þau þurfa fái hann ekki aðgang að meðferðinni. Rafblöðkur sem eiga að hægja á framleiðslu krabbameinsfruma Meðferðin sem þau sóttu um er lækningatæki sem kallast Optune Gio og er tilgangur þess að hægja á eða stöðva framleiðslu krabbameinsfruma. Á heimasíðu Novocure, framleiðanda þess, kemur fram að Optune Gio sé lækningatæki sem hægt sé að bera á sér. Tækið gefi frá sér víxlrafsvið [e. Tumor Treating Fields] sem meðferð fyrir sjúklinga með Glioblastoma krabbamein. Tækið sé úr færanlegum rafli með rafhlöðu og límplástrum sem eru settir á húð höfuðsins yfir æxlissvæðinu. Tækið er aðeins um eitt kíló og hægt að bera það á sér og nota við flestar venjulegar daglegar athafnir. Ilmur Dögg lagði mikla áherslu á það í viðtali fyrr í vikunni að barátta þeirra væri ekki bara fyrir Jón Atla. Það greinist um tíu til tólf manns á hverju ári með þetta æxli og þessi meðferð gæti nýst þeim líka. Meðferðin sé samþykkt víða um heim og notuð í, til dæmis, Svíþjóð, Sviss og Bandaríkjunum. Fyrir Jón Atl var svo settur af stað undirskriftarlisti þar sem er ákall til heilbrigðisráðherra og Sjúkratrygginga, SÍ, að heimila meðferðina. Um tvö þúsund hafa skrifað undir ákallið. Vísað í gögn Í úrskurði kærunefndarinnar er farið ítarlega yfir sjónarmið bæði Jóns Atla, læknis hans og Sjúkratrygginga og tekið fram að nefndin, sem sé skipuð lækni, leggi sjálfstætt mat á gögnin sem hafi verið lögð fyrir. „Fyrir liggur að læknismeðferð við ágengu heilaæxli, eins og kærandi glímir við, er erfið og vandasöm. Óskað er eftir að samþykkt verði að Sjúkratryggingar Íslands greiði fyrir meðferð sem er í boði í Svíþjóð. Ljóst er af gögnum málsins að kærandi hefur notið meðferðar við sjúkdómi sínum hér á landi og hefur m.a. verið meðhöndlaður með geislum og lyfjum. Kæmi sú meðferð sem óskað er eftir að Sjúkratryggingar greiði í viðbót við hana,“ segir í niðurstöðukafla úrskurðarins. Ekki almennt hluti af meðferð á Íslandi Þar kemur jafnframt fram að fyrir liggi álit frá sérfræðiteymi lækna við Landspítalann og þar komi fram að lækningatækið sem um ræðir sé ekki í almennri notkun um allan heim þó að það bjóðist í einhverjum löndum. Meðferðin sé hvorki í boði í Danmörku né Noregi og ekki standi til að innleiða hana hérlendis. „Þannig er ljóst að umrædd meðferð er almennt ekki hluti af meðferð á Íslandi,“ segir í niðurstöðu nefndarinnar. Þar er svo fjallað um lögin þar sem segir að meginreglan sé sú að sjúkratryggðir njóti meðferðar á Íslandi en það sé gerð undantekning frá þeirri reglu sem beri að túlka þröngt. „Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna læknismeðferðar erlendis er bundin ákveðnum skilyrðum samkvæmt m.a. 23. gr. laga um sjúkratryggingar. Aðeins í þeim tilvikum sem ekki er unnt að veita sjúkratryggðum nauðsynlega aðstoð hér á landi er heimild fyrir greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í kostnaði vegna læknismeðferðar erlendis,“ segir í úrskurðinum. Þannig sé meðferð ekki ávallt talin nauðsynleg í skilningi laganna þótt hún kunni að skila „einhverjum betri árangri en sú meðferð sem er talin sjúklingi nauðsynleg“. Nefndin telur, af þeim gögnum sem hún hefur, að dæma að fullnægjandi meðferð sé í boði á Íslandi fyrir Jón Atla og því sé ekki hægt að líta svo á að „brýn nauðsyn sé á viðbótarmeðferð erlendis í skilningi laganna“. Uppfyllir ekki skilyrði í reglugerð Meðferðin taki um sex til átta mánuði með eftirliti á um mánaðarfresti og því sé um langtímameðferð í þeim skilningi sem fjallað er um sérstaklega í reglugerð. Því telur úrskurðarnefndin að umsókn hans uppfylli ekki skilyrði reglugerðar um að meðferð ljúki á skömmum tíma og vari í hæsta lagi í örfáa mánuði. „Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja umsókn kæranda um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar í Svíþjóð,“ segir að lokum. Alls ekki hætt Ilmur Dögg segir niðurstöðu nefndarinnar veruleg vonbrigði. Sérstaklega að vísað sé til tveggja landa þar sem meðferðin sé ekki veitt og ekki horft til þeirra landa sem nota tækið og Ísland beri sig reglulega saman við. Svo segist hún ekki sammála þeirri túlkun að um langtímameðferð sé að ræða. Um sé að ræða lækningatæki sem hann geti tekið heim og að eftirliti sé nánast alltaf sinnt í fjareftirliti. Hún segir þau þó hvergi nærri hætt og að þau ætli að reyna að fara með málið lengra. „Dropinn holar steininn. Mér skal takast þetta. Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla. Þetta er fyrir framþróun í krabbameinsmeðferðum á Íslandi við einu banvænasta krabbameininu,“ segir hún að lokum.
Heilbrigðismál Sjúkratryggingar Krabbamein Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Sjá meira