Krabbamein

Fréttamynd

Fjór­tán góð ráð gegn krabba­meinum

Mottumars, árlegt árvekniátak Krabbameinsfélags Íslands, hefur það markmið að fækka þeim sem greinast með krabbamein, fjölga þeim sem lifa og auka lífsgæði þeirra sem lifa eftir greiningu krabbameins. Krabbamein eru ein helsta dánarorsök í heiminum, en hægt er að koma í veg fyrir allt að 40% krabbameina með heilbrigðum lífsstíl.

Skoðun
Fréttamynd

Enginn einn

Að fá krabbamein getur kollvarpað tilverunni. Það þekkja þeir 1.058 karlmenn sem fá krabbamein á hverju ári og fjölskyldur þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

Mark­miðið ekki að höfða til kvíða að­stand­enda

Framkvæmdastjóri Intuens segir samstarf við Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, hafa verið í góðri trú og í samráði við félagið. Tilgangurinn hafi verið að veita valkost fyrir þá sem sjálfir óskuðu eftir slíkri þjónustu, en ekki að höfða til ótta eða kvíða. Intuens hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að markaðssetja þjónustu sína sérstaklega gagnvart aðstandendum fólks sem greinst hefur með krabbamein.

Innlent
Fréttamynd

Mælir gegn heilskimun Intuens

Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins mælir gegn því að fólk fari í heilskimun hjá fyrirtækinu Intuens. Vísindin séu ekki með fyrirtækinu í liði. Það sé ósiðlegt að fyrirtækið hafi markaðsett sig gagnvart aðstandendum krabbameinssjúkra. 

Innlent
Fréttamynd

Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífs­björgina

Fasteignasalinn Júlíus Margeir Steinþórsson var hress, hafði ekki fundið fyrir neinum einkennum og hélt að hann væri stálsleginn. Við segulómskoðun kom í ljós að hann var með krabbamein. Hann fellir tár þegar hann rifjar upp ferlið.

Lífið
Fréttamynd

James Van Der Beek látinn

Leikarinn James Van Der Beek, stjarna Dawson's Creek og sex barna faðir, er látinn 48 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. Leikarinn, sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í Dawson's Creek og Varsity Blues, lést eftir baráttu við ristil- og endaþarmskrabbamein á þriðja stigi.

Lífið
Fréttamynd

Al­þjóð­legur dagur krabba­meins - Heildræn endur­hæfing Ljóssins

Alþjóðlegur dagur krabbameins er í dag, 4. febrúar. Dagurinn er alþjóðlegur árveknidagur um krabbameinstengd málefni. Dagurinn hefur tvíþættan tilgang, annars vegar sem vitundarvakning um krabbamein og veita fræðslu, og hins vegar hvatning til stjórnvalda og einstaklinga um allan heim að grípa til aðgerða gegn sjúkdómnum.

Skoðun
Fréttamynd

Í krabba­meins­með­ferð og fæðingar­or­lofi á sama tíma

„Lífið fór allt saman á hliðina í smá stund. Það var augljóslega ekki planið að fá bæði þessi risastóru verkefni í hendurnar á sama tíma,” segir Sara Ísabella Guðmundsdóttir en hún greindist með Hodgins-eitilfrumukrabbamein síðasta sumar, einungis fimm vikum eftir að frumburður hennar kom í heiminn. Hún þurfti þar af leiðandi að ganga í gegnum stífa lyfjameðferð á sama tíma og hún var að stíga sín fyrstu skref í móðurhlutverkinu.

Lífið
Fréttamynd

Ljósið flytur í Grafar­vog

Endurhæfingarmiðstöðin Ljósið mun á árinu flytja starfsemi sína í nýtt og mun rýmra húsnæði að Gylfaflöt í Grafarvogi. Nýtt húsnæði verður afhent á sunnudag, 1. febrúar. Það er 1.300 fermetrar með möguleika á stækkun upp í 1.700 fermetra til framtíðar.

Innlent
Fréttamynd

Leghálsskimun – lítið mál!

Leghálsskimun er okkar áhrifaríkasta forvörn gegn leghálskrabbameini. Markmið skimunar er að greina frumubreytingar sem gætu þróast yfir í krabbamein og veita meðferð ef þörf krefur. Síðan skipulögð skimun hófst hér á landi árið 1964 hefur dánartíðni lækkað um 90% á ári og nýgreiningum um 70%. Það er því ljóst að leghálsskimunin hefur bjargað lífi hundruða kvenna frá því að hún var tekin upp.

Skoðun
Fréttamynd

Hefja á­tak í bólu­setningu drengja gegn HPV veirunni

Sóttvarnalæknir boðaði í vikunni að það ætti að hefja átak um bólusetningu drengja gegn HPV Bólusetningin er gjaldfrjáls fyrir drengi sem eru fæddir árin 2008 til 2010. Langalgengasta krabbameinið sem tengist HPV er leghálskrabbamein en hjá karlmönnum er krabbamein í koki einnig algengt og tengist HPV-veirunni sömuleiðis. 

Innlent
Fréttamynd

Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist

Dagur Dan Þórhallsson fer úr sólinni á Flórída í kuldann í Kanada eftir viðburðarríkan vetur vestanhafs. Erfitt reyndist að vera hinum megin á hnettinum þegar móðir hans greindist með krabbamein en föðurhlutverkið hefur á sama tíma verið honum þroskandi.

Fótbolti
Fréttamynd

„Þá sýndu stjórn­völd kjark“

Meirihluti almennings er fylgjandi stjórnvaldsaðgerðum til að sporna við ofþyngd barna. Krabbameinsfélagið segir offitu nú einn stærsta orsakavald krabbameina hérlendis sem hægt er að vinna gegn.

Innlent
Fréttamynd

Fjögur börn á Ís­landi getin með sæði mannsins

Fjögur börn voru getin hér á landi með sæði dansks manns. Sjaldgæf og hættuleg genastökkbreyting fannst í erfðaefni hans sem getur valdið krabbameini. Ekki er vitað hvort þau beri stökkbreytinguna. Þetta kemur fram í umfjöllun Ríkisútvarpsins.

Innlent
Fréttamynd

Hareide með krabba­mein í heila

Åge Hareide, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, er með krabbamein í heila. Hann komst að því í sumar og segir frá veikindum sínum í viðtali við norska miðilinn VG í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Göngu­garpar munu mynda Ljósa­foss niður Esjuna

Það stendur mikið til við Esjuna í dag en þar fer fram svokölluð „Ljósafossganga“ til styrktar Ljósinu þar sem allir verða með höfuðljós og mynda þannig foss þegar gengið verður niður fjallið í myrkrinu. Sjóvá styrkir Ljósið um 2.000 krónur fyrir hvern, sem mætir við Esjurætur, hvort sem viðkomandi ætlar að ganga eða hvetja göngugarpana áfram.

Innlent
Fréttamynd

„Við vorum komin með súrefniskúta heim“

Móðir drengs sem lést eftir áralanga baráttu við krabbamein segir mikilvægt að grípa foreldra langveikra barna betur og fyrr. Foreldrarnir séu undir miklu álagi, standi vaktina allan sólarhringinn og séu margir hverjir að bugast.

Innlent