Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Katla Margrét Jónsdóttir skrifar 10. júní 2026 21:30 Mosfellingar skrifuðu í kvöld nýjan kafla í sögu félagsins þegar þeir komust í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Afturelding lagði Stjörnuna 3-1 í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í miklum markaleik í blíðunni í Mosfellsbæ. Það er ljóst að lið Aftureldingar markar spor í sögu félagsins með sigrinum. Þetta er í fyrsta skipti sem þeir komast í undanúrslit í bikarkeppninni. Þetta var einnig einungis annað skipti þar sem Mosfellingar komast í 8-liða úrslit. Afturelding sitja í örðu sæti í Lengjudeildinni og því er ljóst að Mosfellingar eru á mikilli siglingu þessa dagana. Heimamenn hófu leikinn og gerðu það af krafti en það voru það Stjörnumenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins sem kom á 6. mínútu. Birnir Snær Ingason tók hornspyrnu sem rataði inn á nærsvæðið. Boltinn barst til Heiðars Ægissonar sem stangaði knettinum inn í markið. Heiðar byrjaði leikinn óvænt en hann var færður í byrjunarliðið eftir að Gustav Kjeldsen meiddist í upphitun. Eftir fyrsta markið koðnaði leikurinn töluvert niður. Leikurinn varð þá tíðindalítill allt þar til Afturelding hóf að sækja í sig veðrið undir lok fyrri hálfleiks. Fyrsta alvöru marktækifæri Aftureldingar var sannkallað dauðafæri. Axel Andrésson gaf langt innkast sem endaði í miðjum teignum og þaðan af rataði boltinn til Jóns Vignis Péturssonar sem skaut á markið úr lofti. Síðustu 10 mínútur hálfleiks sótti Afturelding hart að marki Stjörnunnar. Stjarnan stóðst þó pressu og leiddi 1-0 í hálfleik. Stjarnan var sterkari aðilinn í upphafi seinni hálfleiks og sótti af krafti að marki Aftureldingar. Gestirnir áttu erfitt með að halda boltanum og skapa sér færi, en fyrsta marktækifæri þeirra í hálfleiknum kom loks á 60. mínútu. Á 64. mínútu tók leikurinn skyndilega stakkaskiptum. Afturelding sneri taflinu sér í vil með ótrúlegum hætti og opnaði markareikning sinn með þremur mörkum á aðeins 13 mínútna kafla. Á örfáum augnablikum breyttist staða leiksins úr því að Stjarnan væri að leiða leikinn í ótrúlega forystu Aftureldingar. Fyrsta mark Aftureldingar kom á 64. mínútu þegar Birkir Már Sævarsson kom gestunum yfir með föstum skalla eftir góða fyrirgjöf frá Óðni Bjarkasyni. Mosfellingar voru þó hvergi nærri hættir og aðeins tveimur mínútum síðar tvöfölduðu þeir forystuna. Þá var það Bart Kooistra sem reis hæst í teignum og stangaði boltann í netið. Afturelding hélt áfram að sækja af krafti og innsiglaði glæsilegan kafla sinn á 75. mínútu þegar Birkir Már Sævarsson skoraði sitt annað mark í leiknum og þriðja mark Mosfellinga. Það sauð upp úr undir lok leiksins. Gul spjöld fóru á loft hvað eftir annað þegar leikmenn misstu sig í hita leiksins og talsverð harka einkenndi síðustu mínúturnar. Stjörnumenn sýndu greinileg merki um pirring á meðan Aftureldingarmenn börðust fyrir því að verja forystu sína. Þegar dómarinn flautaði til leiksloka var hins vegar engin spurning um úrslitin. Afturelding hafði snúið leiknum sér í vil með magnaðri frammistöðu í seinni hálfleik og tryggði sér verðskuldað sæti í undanúrslitum. Mjólkurbikar kvenna Afturelding Stjarnan