Viðskipti innlent

Icelandair hefur flug til Qaqortoq

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Flogið verður til Qaqortoq fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst.
Flogið verður til Qaqortoq fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst. Icelandair

Icelandair flaug í gær sitt fyrsta flug til Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Flogið verður til Qaqortoq fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst, segir í fréttatilkynningu frá Icelandair.

„Flugtímar til og frá Qaqortoq falla mjög vel að leiðakerfi Icelandair og því skapast með fluginu öflugar tengingar á milli Suður-Grænlands og áfangastaða Icelandair í Evrópu og Norður-Ameríku, um Keflavíkurflugvöll.

Flugvöllurinn í Qaqortoq opnaði í byrjun sumars og tekur hann við af Narsarsuaq í leiðakerfi félagsins. Nýi flugvöllurinn er nær helsta þéttbýlinu á Suður-Grænlandi, sem styttir ferðatíma og bætir upplifun farþega,“ segir í tilkynningunni. 

Icelandair mun fljúga fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst, á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum, og tvisvar í viku í september, á þriðjudögum og laugardögum.

„Við höfum um árabil boðið upp á öflugar tengingar til Suður-Grænlands og erum mjög spennt fyrir því að bæta þjónustuna enn frekar með því að fljúga um þennan glænýja flugvöll sem einnig er nær byggðinni. Við höfum tekið eftir auknum áhuga viðskiptavina okkar austanhafs og vestan á Grænlandi og það er mjög ánægjulegt að geta gert þeim auðveldara fyrir að ferðast til Grænlands auk þess að efla tengingar Suður-Grænlands við umheiminn,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×