Körfubolti

Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Áhorfandinn náði myndbandi af Wembanyama en fær ekki að sjá hann aftur spila.
Áhorfandinn náði myndbandi af Wembanyama en fær ekki að sjá hann aftur spila. Ronald Cortes/Getty Images

Maður sem hljóp inn á völlinn og reyndi að ná sjálfsmynd með Victor Wembanyama í fyrsta úrslitaleik San Antonio Spurs og New York Knicks hefur verið dæmdir í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum.

Þegar tæpar sjö mínútur voru eftir í leiknum í gærkvöldi, sem Knicks unnu á endanum 95-105, hljóp áhorfandi inn á völlinn. Hann reyndi að ná Wembanyama á mynd en var snarlega stöðvaður af öryggisvörðum og vísað út úr húsi.

„Ég hef aldrei lent í þessu. Ég vissi ekki hvernig ég átti að haga mér. Þetta kom mér á óvart, nánast jafn mikið og þegar leðurblaka flaug inn á völlinn,“ sagði Wembanyama og vísaði þar til frægs atviks á fyrsta tímabili hans í deildinni.

Myndband sem þessi æsti áhorfandi tók má sjá hér fyrir neðan.

Maðurinn sem hljóp inn á völlinn og annar maður sem var í slagtogi með honum hafa nú verið dæmdir í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum og leikvöngum.

Wembanyama skoraði 26 stig og greip 12 fráköst, en hitti aðeins úr 6 af 21 skoti í tapi Spurs.

„Ég var lélegur,“ sagði Wembanyama eftir leik en hann fær tækifæri til að gera betur í næsta leik. Annað en áhorfendurnir tveir.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×