Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Bjarki Sigurðsson skrifar 2. júní 2026 19:32 Hildur Björnsdóttir er nýr borgarstjóri Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri í dag. Hún segir starfinu fylgja mikil ábyrgð og að hún muni skera niður í stjórnkerfinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að leggja niður bæði mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð. Í tillögum nýs meirihluta er gert ráð fyrir að lengja opnunartíma sundlauga um helgar á sumrin til miðnættis og afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar.
Fundur borgarstjórnar átti að hefjast klukkan tólf en fyrir lá að þar yrðu Hildur Björnsdóttir og Björg Magnúsdóttir valdar af kollegum sínum í embætti borgarstjóra og forseta borgarstjórnar. Fundurinn tafðist þó um nokkrar mínútur þar sem fráfarandi borgarstjóri var seinn á svæðið vegna viðtals sem hún var í. Björg Magnúsdóttir er nýr forseti borgarstjórnar. Hún mun gegna því embætti í eitt ár og færa sig svo yfir í formannsstól borgarráðs.Vísir/Vilhelm Borgarfulltrúar kusu því næst borgarstjóra og forseta. Hildur og Björg fengu 12 atkvæði hvor í sitt embætti og skiluðu fulltrúar minnihlutans auðu. Heiða heldur áfram í ráðhúsinu Við lyklaskiptin færði Heiða Björg Hildi blómvönd og mynd af Vigdísi Finnbogadóttur. Hún er mikil fyrirmynd bæði Heiðu og Hildar. „Það var auðvitað heiður lífs míns að vera borgarstjóri. Það er búið að vera ótrúlega gaman og ég er stolt af þeim verkum sem við náðum að gera á þessum fimmtán mánuðum. En ég held mínum verkefnum áfram sem borgarfulltrúi. Það er af nægu að taka og margt sem er hægt að bæta í borginni okkar þannig ég hlakka til að takast á við það,“ segir Heiða og kveður niður orðróm um að hún ætli sér ekki að sitja sem borgarfulltrúi þetta kjörtímabilið. Hildur og Heiða föðmuðust þegar búið var að skipa þá fyrrnefndu formlega sem borgarstjóri. Vísir/Vilhelm Hildur segir það sérstaka tilfinningu að vera orðin borgarstjóri. „Þessu fylgir mikil ábyrgð. Ég finn fyrir því og mun gera mitt besta til að standa undir þeirri ábyrgð,“ segir Hildur. Fjöldi verkefna á fjórum árum Meirihlutinn birti í dag 190 verkefna lista. Verkefnunum á ýmist að ljúka á hundrað dögum, tólf mánuðum eða fjórum árum. Meðal verkefna er að afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar, fækka millistjórnendum hjá borginni, hafa sundlaugar opnar til miðnættis um helgar á sumrin, styðja við hinsegin fræðslu í grunnskólum, þrýsta á stjórnvöld um lagabreytingu svo fækka megi borgarfulltrúum og hefja framkvæmdir bæði á Sundabraut og mislægum gatnamótum við Reykjanesbraut og Bústaðarveg. Þá verði fitan skorin af innan veggja ráðhússins. „Við ætlum okkur líka að yfirfara samþykkt um kjör og starfsaðstæður borgarfulltrúa. Það er margt sem má laga þar. Helsta fitulagið er auðvitað í stjórnkerfinu sjálfu. Borgarfulltrúarnir eru bara lítill hluti af því, þó að það sé margt sem má taka þar til. Helsta fitulagið er í stjórnkerfinu og það er þar sem við ætlum að taka til,“ segir Hildur. Heiða afhenti Hildi lykilinn að borginni. Lykillinn er þó í raun bara táknrænn og gengur að skáp á skrifstofu borgarstjóra. Vísir/Lýður Valberg Mannréttindaskrifstofa og -ráð hverfa Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að leggja niður bæði mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð borgarinnar. Hildur vildi ekki staðfesta þá ákvörðun. „Hún mun liggja fyrir á næstu misserum. Við höfum auðvitað talað um stjórnkerfisbreytingar og að leggja niður skrifstofur. Þetta munum við allt kynna þegar það er klárt, vonandi á næstu vikum,“ segir Hildur.
Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Mannréttindi Sundabraut Bílastæði Húsnæðismál Sundlaugar og baðlón Hinsegin Grunnskólar Vegagerð Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Fleiri fréttir Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Sjá meira