Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Lovísa Arnardóttir skrifar 30. maí 2026 14:45 Nýr starfshópur á að skoða þróun veitingar íslensks ríkisborgararéttar. Umsóknum hefur fjölgað, bæði til Útlendingastofnunar og Alþingis. Vísir/Einar Umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt til Útlendingastofnunar hefur fjölgað um 290 prósent á síðustu fimm árum. Á sama tíma hefur þeim einnig fjölgað sem sækja um ríkisborgararétt til Alþingis.
Dómsmálaráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp til að greina gildandi lög og skilyrði fyrir veitingu íslensks ríkisborgararéttar. Í tilkynningu um skipunina kemur fram að markmiðið með henni sé að fá heildstæða yfirsýn yfir þróun umsókna, framkvæmd við veitingu ríkisborgararéttar og hvort ástæða sé til breytinga á lagaumhverfi eða verklagi. Starfshópurinn á að skila ráðherra tillögum sínum eigi síðar en 1. október. „Að fá ríkisborgararétt eru forréttindi. Að fá íslenskan ríkisborgararétt er og á að vera stór stund í lífi þeirrar manneskju sem hann fær,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í tilkynningu um málið. Starfshópinn skipa Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir, Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir og Vilhjálmur Hilmarsson sem jafnframt er formaður starfshópsins. Tveir starfsmenn ráðuneytisins verða hópnum innan handar samkvæmt tilkynningu Stjórnarráðsins. Samkvæmt tilkynningu mun hópurinn leggja áherslu á að greina gildandi skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar og bera þau saman við sambærileg skilyrði á hinum Norðurlöndunum. Við vinnu hópsins verði höfð hliðsjón af þeim markmiðum sem nefnd eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að gæta skuli samræmis við reglur nágrannaríkja á sviði útlendingamála, eftir því sem við á, og tryggja að lagaumhverfi og framkvæmd séu skýr, skilvirk og í samræmi við þær kröfur sem ber að gera til veitingar ríkisborgararéttar. Starfshópnum verður jafnframt falið að meta hvort ástæða sé til breytinga og þá að hvaða leyti, greina helstu áskoranir í málaflokknum og koma með tillögur að úrbótum á lagaumhverfi og stjórnsýslu.
Innflytjendamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hælisleitendur Flóttafólk á Íslandi Alþingi Ríkisborgararéttur Tengdar fréttir Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Þegar Hlín Christiane Mainka Jóhannesdóttir var unglingur í Þýskalandi skrifaði hún bréf til stúlku á Íslandi sem hún þekkti ekki. Hún var að leita svara um nám á Hólum og drauminn um líf með íslenska hestinum. Á umslaginu stóð aðeins nafn stúlkunnar og „Hólar, Hjaltadalur, Ísland“.Nokkrum vikum síðar barst svar sem átti eftir að hafa afgerandi áhrif á líf Hlínar. 30. maí 2026 09:02 Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn „Ég var með íslenskt vegabréf í hendinni og var að fara að kjósa í fyrsta sinn á Íslandi. Ég var glöð og í góðu skapi og tók þetta mjög alvarlega. Samt var mér sagt að ég ætti ekki heima hér,“ segir Svetlana Veschagina. 24. maí 2026 14:02 „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Útlendingastofnun hefur hafnað því að veita konu sem fædd er og uppalin á Íslandi íslenskan ríkisborgararétt. Hún furðar sig á málsmeðferð stofnunarinnar. 18. apríl 2026 00:17 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Þegar Hlín Christiane Mainka Jóhannesdóttir var unglingur í Þýskalandi skrifaði hún bréf til stúlku á Íslandi sem hún þekkti ekki. Hún var að leita svara um nám á Hólum og drauminn um líf með íslenska hestinum. Á umslaginu stóð aðeins nafn stúlkunnar og „Hólar, Hjaltadalur, Ísland“.Nokkrum vikum síðar barst svar sem átti eftir að hafa afgerandi áhrif á líf Hlínar. 30. maí 2026 09:02
Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn „Ég var með íslenskt vegabréf í hendinni og var að fara að kjósa í fyrsta sinn á Íslandi. Ég var glöð og í góðu skapi og tók þetta mjög alvarlega. Samt var mér sagt að ég ætti ekki heima hér,“ segir Svetlana Veschagina. 24. maí 2026 14:02
„Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Útlendingastofnun hefur hafnað því að veita konu sem fædd er og uppalin á Íslandi íslenskan ríkisborgararétt. Hún furðar sig á málsmeðferð stofnunarinnar. 18. apríl 2026 00:17