Stefán Carlsson er látinn Atli Ísleifsson skrifar 28. maí 2026 14:24 Stefán Carlsson var meðal stofnenda Orkuhússins við Suðurlandsbraut og var um árabil læknir íslenska karlalandsliðsins í handbolta. Stefán Carlsson bæklunarskurðlæknir er látinn, 77 ára að aldri. Hann lést síðastliðinn laugardag.
Greint var frá andlátinu í Morgunblaðinu í morgun en Stefán var meðal stofnenda Orkuhússins við Suðurlandsbraut og var um árabil læknir íslenska karlalandsliðsins í handbolta. Í æviágripum segir að Stefán hafi fæðst 29. maí 1949 í Reykjavík, en foreldrar hans voru Carl Pétur Stefánsson, rafvirki og bankamaður, og Guðríður Lilja Jónsdóttir húsfreyja. „Stefán varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1970 og lauk læknisprófi frá Háskóla Íslands árið 1976. Hann var aðstoðarlæknir á Borgarspítalanum 1976 til 1979 og fór þá til náms við Háskólann í Västerås í Svíþjóð þar sem hann lauk sérfræðinámi í bæklunarskurðlækningum árið 1983. Stefán flutti þá til Íslands ásamt fjölskyldu sinni og starfaði eftir það sem bæklunarskurðlæknir á Borgarspítalanum og síðar Landspítalanum, lengst af á slysa- og bráðamóttökunni í Fossvogi. Stefán var með fyrstu læknum á þyrlum Landhelgisgæslunnar og hann var um árabil læknir íslenska karlalandsliðsins í handknattleik og átti jafnframt sæti í landsliðsnefnd HSÍ. Stefán var meðal stofnenda Orkuhússins við Suðurlandsbraut árið 2003, ásamt fleiri læknum, og sat þar í stjórn fyrstu árin. Þá var hann um tíma formaður Bæklunarlæknafélags Íslands og sótti margar ráðstefnur erlendis á vegum þess. Stefán sinnti ýmsum félagsstörfum og áhugamálum, var mikill Valsari og starfaði lengi fyrir félagið. Hann var um árabil félagi í Oddfellowreglunni þar sem hann starfaði í stúkunni Þorgeiri, m.a. sem yfirmeistari. Stefán hafði mikinn áhuga á flugustangveiði og var reglulegur gestur í helstu laxveiðiám landsins. Fékk hann snemma áhuga á veiðinni er hann var í sveit í Vatnsdalnum sem ungur drengur. Eftirlifandi eiginkona Stefáns er Rannveig Ásbjörnsdóttir, f. 1949. Börn þeirra eru Hrönn, f. 1975, og Ásbjörn, f. 1979. Barnabörnin eru níu talsins.
Andlát Heilbrigðismál Landslið karla í handbolta Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira