Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Stefán Árni Pálsson skrifar 27. maí 2026 14:01 Sigríður og Sólrún eru í miðjum framkvæmdum í húsi sem þær fjárfestu saman í ásamt mökum þeirra. Sindri Sindrason skellti sér á heimili tvíburasystra, tveggja verkfræðinga, í Íslandi í dag á Sýn í gær sem báðar eru með svarta beltið í taekwondo.
En það sem gerir aðstæður þeirra merkilegar og öðruvísi er að þær ákváðu að kaupa heimili saman ásamt eiginmönnum sínum. Og lesið nú. „Ég hafði alltaf ákveðið þegar ég var 35 ára að ég ætlaði að vera ólétt, hvort sem það væri með manni eða ekki. Ég var búin að kaupa sæði og var búin að fara í tæknisæðingu sem gekk ekki. En svo kynntist ég kærastanum mínum og við ákváðum svo bara eiginlega of fljótt að eignast barn. Það tók tíma og við misstum fóstur og það tók alveg meira en ár að verða ólétt aftur,“ segir Sigríður Lilja Skúladóttir og heldur áfram. „Við erum enn þá saman og svo eignaðist ég dóttur mína 22. júlí 2024. En stuttu eftir að ég varð ólétt á þessum tíma varð Sóla ólétt líka,“ segir Sigríður. Óléttar á sama tíma „Það var líka búið að vera smá vesen hjá okkur, ég var búin að missa nokkrum sinnum fóstur og svona vesen. Þannig að það var mjög ánægjulegt að geta verið saman í þessu svona eftir svolítið brösótt ferli,“ segir Sólrún Svava Skúladóttir. Sindri var á því að hann hefði aldrei séð eins nánar manneskjur og þær systur. Báðar fóru þær í gegnum verkfræði í Háskóla Íslands, þaðan í skiptinám til Japans og eru báðar með BA í japönsku og einnig fóru þær báðar í skiptinám til Suður-Kóreu. „Við erum bara hrifnar af sama og svo nennum við ekkert að feika að vera öðruvísi. Fyrst vorum við eitthvað að pæla í að fara hvor í sinn menntaskólann en svo bara langaði okkur báðar í MH og við vorum ekkert að fara að breyta því til að vera ekki eins,“ segir Sólrún en heyra mátti í innslaginu hér að neðan að þær til að mynda klára setningar hvor annars ítrekað.
Ísland í dag Ástin og lífið Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira