Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. maí 2026 08:54 Kim Kardashian hefur lengi dreymt um að verða lögmaður en gengið erfiðlega að öðlast réttindin. Getty Athafnakonan Kim Kardashian hefur í mörg ár stefnt á lögmennsku en gengið brösuglega. Á síðasta ári féll hún á prófi til lögmannsréttinda í Kaliforníu og virðist ætla að taka sér pásu frá frekari prófum, allavega á þessu ári.
Dægurmálamiðillinn TMZ greinir frá þessu en heimildarmenn miðilsins herma að Kim hafi sleppt því að taka prófið í febrúar og ætli ekki að taka það í júlí en það er hægt að taka það tvisvar á ári. Kim muni því ekki reyna aftur við prófið fyrr en 2027 þannig eitthvað ætlar að teygjast meira á þessu lögfræðiferðalagi hennar. Kim hefur þó sjálf ekkert tjáð sig um málið. Féll ítrekað, útskrifaðist og féll svo aftur Lögmannsréttindum í Bandaríkjunum er háttað þannig að maður þarf að þreyta próf í hverju ríki fyrir sig til að geta starfað þar sem lögmaður. Kim tók prófið í Kaliforníu í fyrra og greindi svo frá því í nóvember að hún hefði ekki náð því. „Ég held áfram á fullu þar til ég næ prófinu. Ég ætla ekki að stytta mér leið eða gefast upp – bara halda áfram að læra og leggja hart að mér,“ sagði hún þá á samfélagsmiðlum. Það var í fyrsta skiptið sem Kim tók prófið en hún hafði náð svokölluðu „baby bar“-prófi, sem er í raun próf laganema á fyrsta ári, árið 2021 eftir að hafa fallið á því þrisvar á tveimur árum. Hún lauk síðan lögfræðinámi sínu í maí í fyrra eftir sex ára nám og fylgdi þar í fótspor föður síns, stjörnulögfræðingsins Roberts Kardashian. Sjá einnig: Kim náði lögfræðiprófinu í fjórðu tilraun En þó hún verði ekki lögmaður í bráð fær hún að leika slíkan í sjónvarpsþáttunum All's Fair sem voru sýndir á Disney+ síðasta haust og fengu hörmungardóma hjá gagnrýnendum. Áhorfendur tóku þó vel í þættina og í nóvember 2025 var tilkynnt að það kæmi önnur sería.
Hollywood Raunveruleikaþættir Bandaríkin Lögmennska Tengdar fréttir Þessi sigruðu Met Gala Fyrsti mánudagur í maí var í gær og tískuunnendur heimsins vita hvað það þýðir, Met mánudagur. Stærsta tískuhátíð ársins Met Gala fór fram með pompi og prakt á Metropolitan safninu í New York í gærkvöldi og stærstu stjörnur heimsins gáfu ekkert eftir í glæsileikanum. 5. maí 2026 09:13 Óþekkjanleg á Óskarnum Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er þekkt fyrir að taka áhættu í klæðaburði og fer oft frumlegar leiðir í fatavali. Í gegnum tíðina hefur hún unnið náið með umdeilda listræna stjórnandanum Demna sem var lengi hjá tískuhúsinu Balenciaga en hefur nú fært sig yfir til Gucci. 16. mars 2026 15:33 Hamilton ætlar ekki að bruna Sjónvarpsstjarnan og athafnakonan Kim Kardashian og kappaksturskappinn Lewis Hamilton ætla ekki að flýta sér um of meðan þau feta sín fyrstu skref í sambandi sínu. Parið er sagt passa vel saman. 8. febrúar 2026 13:55 Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira
Þessi sigruðu Met Gala Fyrsti mánudagur í maí var í gær og tískuunnendur heimsins vita hvað það þýðir, Met mánudagur. Stærsta tískuhátíð ársins Met Gala fór fram með pompi og prakt á Metropolitan safninu í New York í gærkvöldi og stærstu stjörnur heimsins gáfu ekkert eftir í glæsileikanum. 5. maí 2026 09:13
Óþekkjanleg á Óskarnum Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er þekkt fyrir að taka áhættu í klæðaburði og fer oft frumlegar leiðir í fatavali. Í gegnum tíðina hefur hún unnið náið með umdeilda listræna stjórnandanum Demna sem var lengi hjá tískuhúsinu Balenciaga en hefur nú fært sig yfir til Gucci. 16. mars 2026 15:33
Hamilton ætlar ekki að bruna Sjónvarpsstjarnan og athafnakonan Kim Kardashian og kappaksturskappinn Lewis Hamilton ætla ekki að flýta sér um of meðan þau feta sín fyrstu skref í sambandi sínu. Parið er sagt passa vel saman. 8. febrúar 2026 13:55