Viðskipti erlent

Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Olíu- og flutningaskip liggja við ankeri í grennd við Hormús-sund og bíða þess að komast í gegn. 
Olíu- og flutningaskip liggja við ankeri í grennd við Hormús-sund og bíða þess að komast í gegn.  AP Photo

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið hærra frá árinu 2022 eftir miklar hækkanir á mörkuðum í Asíu í morgun.

Verðið tók kipp upp á við eftir að fregnir bárust af því að bandarísk hernaðaryfirvöld hefðu kynnt mögulega hernaðaráætlun fyrir næstu daga gagnvart Íran fyrir Bandaríkjaforseta. Áætlunin er sögð gera ráð fyrir mörgum snörpum en öflugum árásum á Íran með það að markmiði að koma skriði á viðræðurnar á milli landanna sem hafa siglt í strand.

Brent-olían svokallaða hækkaði um sjö prósent í morgun og fór í 126 dollara á tunnuna en svo dýr hefur olían ekki verið síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst.

Eldsneytisverð hefur raunar hækkað stöðugt alla vikuna eftir að viðræðurnar sigldu í strand enda er Hormússund í raun og veru lokað, en í gegnum það fer stór hluti olíuflutninga heims.

Hér á landi verður virðisaukaskattur á eldsneyti lækkaður tímabundið og tekur breytingin gildi á morgun, 1. maí og verður í gildi út 31. ágúst næstkomandi. Lög þessa efnis voru samþykkt á Alþingi í gær og á þessu tímabili mun eldsneyti því bera ellefu prósensnta virðisaukaskatt en ekki 24 prósent eins og venjan er.


Tengdar fréttir

Furstadæmin yfirgefa OPEC

Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa samtök olíuútflutningsríkja eða OPEC-ríkin svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds.

Brent olían rauf 120 dollara múrinn

Verð á tunnunni af Brent olíunni rauf 120 dollara múrinn í morgun. Hefur Brent olían því hækkað um nær 10% frá því í síðasta mánuði.

Brent olían rýkur upp eftir verkbannsboðun í Noregi

Tunnan af Brent olíunni hefur hækkað um tæp 2% í morgun og er komin í 101,5 dollara eftir að Landssamtök olíuframleiðenda (OLF) í Noregi boðuðu allsherjar verkbann á öllum olíuborpöllum landsins frá og með næsta mánudegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×