Viðskipti innlent

Verð­bólga hjaðnar

Árni Sæberg skrifar
Eldsneytisverð hafði mikil áhrif á mælinguna.
Eldsneytisverð hafði mikil áhrif á mælinguna. Vísir/Vilhelm

Verðbólga í apríl mældist 5,2 prósent eftir að hafa mælst 5,4 prósent í mars. Mælingin nú er sú síðasta fyrir næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans, sem er eftir fjórar vikur.

Í tilkynningu á vef Hagstofunnar þess efnis segir að vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í apríl 2026, sé 683,8 stig og hækki um 0,81 prósent prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis sé 547,0 stig og hækki um 0,85 prósent frá mars 2026.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, reiknuð húsaleiga, hafi aukist um 0,8 prósent  og haft 0,16 prósenta áhrif á vísitöluna til lækkunar, verð á bensíni hafi hækkað um 12,1 prósent, áhrif 0,21 prósent til hækkunar, verð á dísel hafi hækkað um 19,7 prósent, áhrif 0,16 prósent til hækkunar og verð á flugfargjöldum til útlanda hafi hækkað um 6,1, áhrif 0,14 prósent til hækkunar.

Síðastliðna tólf mánuði hafi vísitala neysluverðs hækkað um 5,2 prósent og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8 prósent.

Í aðdraganda mælingarinnar höfðu greinendur ekki verið á sama máli um það hver niðurstaðan yrði. Samkvæmt nýlegri umfjöllun Innherja höfðu Kvika, Landsbankinn og Arion spáð því að verðbólgan myndi aukast í 5,5 prósent, IFS að hún myndi hjaðna í 5,2 prósent og Íslandsbanki og Jakobsson að hún myndi hjaðna í 5,1 prósent.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×