Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. apríl 2026 10:24 Skólaráðið krefst tafarlausra aðgerða vegna stöðu mála á vegkaflanum. Aðsend Skólaráð Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla krefst tafarlausra aðgerða vegna aðstæðna á vegkafla sem nemendur skólans þurfa að fara um dag hvern. Oft og tíðum falli þar grjót eða snjóflóð á veginn sem talinn er einn sá áhættumesti á landinu. Nauðsynlegt sé fyrir börnin að ferðast á milli.
Skólaráð Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla krefst tafarlausra aðgerða vegna alvarlegrar og viðvarandi hættu á vegkafla Suðurfjarðarvegar í opnu bréfi sem birt var á Austurfrétt. Dag hvern þurfa skólabörn að fara í rútu um veginn þar sem oft er grjóthraun, veruleg hætta á krapa- og aurskriðum og hrunvarnir sem duga ekki gegn raunverulegri hættu. „Við erum eini skólinn á landinu sem er að kenna á tveimur stöðum, sitt á hvað,“ segir Steinþór Snær Þrastarson, skólastjóri Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla, í samtali við fréttastofu. Þrjá daga vikunnar fara börnin frá Breiðdalsvík með rútu til Stöðvarfjarðar og öfugt hina tvo dagana. Á þessu skólaári hefur ekki verið hægt að fara með börnin á milli í alls átta daga en að meðaltali er ófært fimm til átta daga á ári. Í opna bréfinu segir að vegkaflinn milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur hafi ítrekað verið metinn áhættumesti vegkafli landsins. „Hér er því ekki um tilfallandi aðstæður að ræða heldur kerfisbundið öryggisvandamál sem hefur verið þekkt um árabil,“ segir skólaráðið sem sendi bréfið á hina ýmsu þingmenn og fulltrúa Vegagerðarinnar. Börnin sett í mikla hættu Steinþór segir að ástandið hafi mikið verið til umræðu undanfarnar vikur. „Það er mikið akstursálag á börn og starfsfólk og ofan á það erum við að reka okkur á það að keyra fram á stórt grjót á morgnana því það er ekki búið að fara yfir veginn og við erum ekki tilbúin að sætta okkur við þetta lengur, þetta er hættulegt,“ segir hann. Skólaráðið telur að börnin séu sett í fyrirsjáanlega hættu. Skólarútan ekur oft fram á grjót á veginum.Aðsend „Þá liggur jafnframt fyrir að upplýsingar um ástand og færð liggja oft ekki fyrir áður en nemendurnir leggja af stað, sem eykur frekar óvissu og áhættu í þessum ferðum,“ segir ráðið. „Einnig liggur fyrir að þær varnir sem settar voru upp við endurbyggingu vegarins á árunum 2000–2002 duga ekki. Samkvæmt svörum Vegagerðarinnar stöðva svokallaðir grjótkassar hvorki stærri steina né skriður. Þrátt fyrir það er ekki gert ráð fyrir endurbyggingu viðkomandi vegkafla fyrr en á árunum 2030–2031 samkvæmt samgönguáætlun.“ Þau krefjast þess að tafarlaus og opinber öryggisúttekt verði gerð á vegkaflanum, að gripið verði til bráðaaðgerða án tafar til að draga úr hættu vegna grjóthruns, skriðufalla og snjóflóða og að sett verði fram skýr og tímasett aðgerðaáætlun um varanlegar úrbætur. Þá krefst ráðið þess að öryggi skólaaksturs verði sérstaklega metið og tryggt þar til varanlegar lausnir liggja fyrir. „Þegar við komumst ekki á milli því það er snjóflóð eða krapaflóð hefur þetta áhrif á kennsluna sem þessi börn fá, þau fá ekki jafna kennslu á við önnur börn,“ segir Steinþór. Nauðsynlegt að hitta önnur börn Þá daga sem ekki er hægt að keyra með börnin á milli eru gerðar breytingar á stundaskrá og dvelja þau í heimabænum sínum. Börnin eru alls 32 og segir Steinþór það ekki hægt að skipta kennslunni alveg. Ástandið á vegunum liggur oftast ekki fyrir þegar nemendurnir leggja af stað.Aðsend „Þau eru of fá og fá ekki þessa félagslegu örvun sem við viljum. Eftir að við byrjuðum á þessu sjáum við að þetta er betra fyrir börnin,“ segir hann. Börnin eru einnig á mismunandi aldri og geta jafnvel ekki verið með jafnöldrum sínum nema með sameiningunni.
Fjarðabyggð Skóla- og menntamál Færð á vegum Grunnskólar Vegagerð Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira