Færð á vegum
1 2 3 4 5 6 … 14 ›
Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Í dag er spáð suðvestan og vestan fimm til þrettán metrum á sekúndu og dálitlar skúrir eða él, en að mestu bjart og þurrt austanlands. Snýst í austan- og suðaustanátt seint í kvöld með snjókomu eða slyddu. Veður 30.3.2026 07:25
Bílar fastir við Steingrímsfjarðarheiði Nokkrir bílar eru fastir í Norðdal við Steingrímsfjarðarheiði. Vegurinn er ófær. Innlent 29.3.2026 13:06
Foktjón á Suðurnesjum og Akranesi Yfir hundrað björgunarsveitarmenn voru ræstir út í ýmis verkefni vegna óveðursins sem skall á suðvesturhluta landsins í gær. Nokkuð var um foktjón á Suðurnesjum, Akranesi og Hvammstanga. Innlent 29.3.2026 10:10
Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Lokað hefur verið fyrir umferð um vegi í kringum höfuðborgarsvæðið vegna óveðurs sem ríður yfir landið. Þung færð er um helstu stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins og víða sitja bílar fastir. Innlent 28.3.2026 20:06
Eins og síðast en „einu númeri minna“ Gul viðvörun vegna hríðar og storms tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan sex í kvöld. Veðurfræðingur segir veðrið svipa til þess sem gekk yfir landið fyrr í vikunni en þó vera „einu númeri minna“. Innlent 28.3.2026 13:11
Holtavörðuheiði líklega lokuð til morguns Holtavörðuheiði er lokuð og ekkert ferðaveður. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að ólíklegt sé að hægt verði að opna fyrr en í fyrramálið miðað við veðurspá. Innlent 27.3.2026 14:56
Barnlaus leikskóli Sigrún Grétarsdóttir, leikskólastjóri í Hólaborg í Breiðholti í Reykjavík, var mætt til vinnu snemma í morgun en lágmarksopnun var í öllum leikskólum borgarinnar og mælst var til þess að fólk kæmi ekki með börnin nema nauðsyn væri. Innlent 26.3.2026 11:13
Strætó hættir akstri í dag Strætó hefur stöðvað allan akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu vegna erfiðrar færðar og veðurskilyrða. Vagnar voru fastir víða og einhverjar leiðir hættar áður vegna erfiðrar færðar. Innlent 26.3.2026 09:53
Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Fréttastofa Sýnar efnir til aukafréttatíma í sjónvarpi klukkan tólf á hádegi vegna óveðurs um land allt. Innlent 26.3.2026 09:40
Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um hádegi Hjalti J. Guðmundsson, skrifstofustjóri reksturs og umhirðu hjá Reykjavíkurborg, segir vel ganga að halda helstu stofnleiðum auðum. Vetrarþjónusta fari á fullt um hádegisbil svo helstu stofnæðar, fyrir bíla, gangandi og hjól, verði greiðar þegar umferð hefst að nýju þegar viðvörun rennur úr gildi um 13. Innlent 26.3.2026 09:25
Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Sorphirða fór fram í Reykjavík í morgun í ákveðnum hverfum og í Kópavogi samkvæmt ábendingum. Fréttastofa hefur fengið nokkrar ábendingar frá lesendum sem furða sig á því að sorphirðufólk hafi verið sent af stað þegar aðrir voru beðnir að vera heima. Innlent 26.3.2026 08:46
Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi á Suðausturlandi, Vestfjörðum og Miðhálendinu. Fjölda vega hefur verið lokað og er varað við ferðalögum. Innlent 26.3.2026 06:27
Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi á suðvesturhluta landsins í fyrramálið og síðar tekur gul viðvörun gildi í öðrum landshlutum. Búist er við raski á samgöngum, skólastarfi og í atvinnulífinu vegna veðursins. Veður 25.3.2026 18:05
Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, í samráði með Almannavörnum, varar við vondu veðri á morgun. Appelsínugular veðurviðvaranir verða í gildi fyrripart dags. Viðbúnaður verður aukinn sérstaklega í Grindavík. Innlent 25.3.2026 16:13
Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins fundar klukkan 17 með sviðsstjórum fræðslusviða höfuðborgarsvæðisins og tekur ákvörðun um skólahald á morgun. Þegar börn eiga að mæta til skóla á morgun verður appelsínugul viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 25.3.2026 14:05
„Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér“ Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið vegna suðaustan storms og stórhríðar. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg býst við að verulega hægist á umferð og segir að viðbragðsáætlun vegna veðursins hafi verið virkjuð. Innlent 25.3.2026 12:04
Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Lægðin sem olli illviðrinu í gær er nú fyrir austan land og fjarlægist smám saman. Veðurspáin gerir ráð fyrir norðan- og norðaustanátt í dag, víða átta til fimmtán metrar á sekúndu og él, en heldur hvassara og snjókoma austanlands fram eftir morgni. Veður 24.3.2026 07:16
Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Björgunarsveitarmenn hafa haft í nógu að snúast á mörgum vígstöðvum í dag. Vegum hefur verið lokað víða um land og hefur þurft að koma fólki sem setið hefur fast til aðstoðar. Innlent 23.3.2026 21:29
Fjórðungur Hringvegarins lokaður Lokað hefur verið fyrir fjölda vega víða um land vegna illviðris og slæms skyggnis, þar á meðal um Þrengslin, Hellisheiði og Öxnadalsheiði. Þá hefur 320 kílómetra vegkafla Hringvegarins verið lokað á Suðausturlandi. Innlent 23.3.2026 17:17
Vegalokanir, snjóflóðahætta og óvissustig Fjöldi vega víða um land hefur verið lokað vegna veðurs, þar á meðal Hringvegurinn og Hellisheiðin. Óvissustig er í gildi víða og má búast við að fleiri vegum verði lokað. Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir og er óvissustig á Austurlandi vegna snjóflóðahættu. Innlent 23.3.2026 14:39
Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Hringveginum hefur verið lokað á milli Hafnar og Djúpavogs. Þá er hefur Fjarðarheiði og Fagradal einnig verið lokað auk Almennings á Siglufjarðarvegi en þar féll snjóflóð. Innlent 22.3.2026 09:55
Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Lokað verður fyrir umferð um þjóðveg 1 milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs klukkan ellefu í kvöld vegna veðurs. Sömuleiðis verður Fjarðarheiði lokað klukkan tíu af sömu ástæðu. Innlent 21.3.2026 17:28
Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Lokað er fyrir umferð um Öxnadalsheiði en opnað hefur verið fyrir umferð um Holtavörðuheiði. Gular veðurviðvaranir eru fallnar úr gildi. Innlent 21.3.2026 09:39
Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Gular veðurviðvaranir eru nú í gildi um allt vestanvert landið og einu svæðin sem eru undanskilin eru Norðurland eystra, Austurland og Austfirðir. Á höfuðborgarsvæðinu verður viðvörun í gangi í allan dag og fram á morgundaginn en spáð er suðvestan hvassviðri og dimmum éljum. Annars staðar er einnig spáð hvassviðri eða jafnvel stormi og er varasamt að vera á ferðinni. Veður 20.3.2026 07:21
„Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Gular viðvaranir verða í gildi á öllu sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og búast má við truflunum á samgöngum. Öllu innanlandsflugi Icelandair hefur verið aflýst í dag og farþegum sem eiga flug eiga til og frá Evrópu í fyrramálið verið boðið að færa sig í önnur flug. Innlent 19.3.2026 12:10
Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Gular viðvaranir munu taka gildi á landinu öllu á næsta sólarhring um allt land og varasömu eða alls engu ferðaveðri spáð í dag og víða fram til klukkan 9 á laugardagsmorgun. Innlent 19.3.2026 09:36
Enn viðvaranir og óvissustig vegna snjóflóðahættu Gular viðvaranir eru nú í gildi vegna veðurs á Faxaflóa, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra. Þær eru annars vegar til 14 og 17. Þar er norðvestan stormur og hríð og á Faxaflóa er vindhraðinn allt að 25 metrum á sekúndu. Veður 17.3.2026 07:18
Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Hátt í fimm hundrað manns gistu í fjöldahjálparstöðvum, gistiheimilum og hótelum í nótt vegna lokunar á Holtavörðuheiði. Búið er að opna veginn og lögregla segir fólk geta komið sér af stað. Mikilvægt sé þó að gefa sér tíma. Innlent 16.3.2026 08:57
Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Gestur Hansson, snjóflóðaeftirlitsmaður á Siglufirði, segir veðrið á Siglufirði að ganga niður og það hafi verið bærilegt í nótt. Innlent 16.3.2026 08:47
Holtavörðuheiðin opin á ný Búið er að opna Holtavörðuheiðina eftir lokun í nótt. Enn er ófært um Fróðaárheiði. Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum. Veður 16.3.2026 07:22