„Já, ég er dálítið reiður“ Smári Jökull Jónsson skrifar 15. apríl 2026 12:06 Magnús Þór Jónsson formaður KÍ var ekki ánægður eftir ræðu Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, á þingi KÍ í morgun. Vísir/Sigurjón/Vilhelm Formaður Kennarasambandsins lýsir gríðarlegum vonbrigðum með orð ráðherra menntamála á þingi Kennarasambandsins í morgun um breytingar á námsmati í grunnskólum. Hann segir áhyggjuefni að ríkisstjórnin ætli að halda áfram að kasta hlutum til kennara sem ganga þvert gegn ríkjandi aðalnámskrá.
Þing Kennarasambandins var sett á Hilton hótelinu í morgun og hélt Inga Sæland, barna og menntamálaráðherra, erindi í upphafi þingsins. Kom Inga víða við í ræðu sinni og er óhætt að segja að undirtektir kennara í salnum hafi verið misjafnar. Lýsti Inga meðal annars skoðun sinni að nota ætti tölustafi í einkunnagjöf í grunnskólum en ekki bókstafi eða önnur form. „Ég veit að það er umdeilt í ykkar hópi en mér finnst það skipta máli og það skiptir máli að þetta er í samræmi við það sem meirihluti foreldra og samfélagsins vill,“ sagði ráðherra í ræðu sinni sem áætlað var að tæki fimmtán mínútur en var hálftími. Populísk skoðun sem rími ekki við þá fagmennsku sem þarf Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, var afar ósáttur með orð ráðherra um námsmatið. „Ég verð að fá að lýsa yfir gríðarlegum vonbrigðum með það að hún hafi hent hér framan í þingið okkar breytingum sem hún segist vera búin að tilkynna og ákveða að gera sem munu hafa áhrif á námsmat í grunnskóla.“ Frá þingi KÍ í morgun.Vísir/Sigurjón Vísaði hún til könnunar Maskínu í október þar sem fram kom að yfirgnæfandi meirihluti landsmanna væri hlynntur einkunnagjöf í tölustöfum frekar en bókstöfum. „Þetta getur ekki verið neinum til gæfu að vísa í samtöl við fólk utan skólakerfisins eða skoðanakannanir eða einstök bréf sem stjórnmálamenn fá til að lyfta upp popúlískri skoðun sem rímar ekki við þá fagmennsku sem þarf að ríkja í þessum ákvörðunum. Þannig að já, ég er dálítið reiður.“ Skýtur fast á vinnubrögðin Vinnubrögðin gangi þvert á vinnureglur sem hafi verið viðhafðar um samtal ríkisstjórna og stéttarfélaga. Orð Ingu hafi verið vont innlegg á þingið og Kennarasambandið muni óska eftir upplýsingum um hvernig eigi að snúa við kerfi sem fjárfest hafi verið í af kennurum og stuðlað að farsælli tengingu á milli grunnskóla og framhaldsskóla. „Það er auðvitað verulega mikil vonbrigði að við búum í þeim veruleika að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætli að halda áfram að kasta til okkar hlutum sem ganga þvert gegn ríkjandi aðalnámskrá,“ sagði Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands.
Grunnskólar Framhaldsskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Tengdar fréttir Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæland Formaður Kennarasambands Íslands furðar sig á fullyrðingum menntamálaráðuneytisins um lengd skólaársins í íslenskum grunnskólum. Lögbundnir kennsludagar á Íslandi séu 180 talsins, það viti allir foreldrar grunnskólabarna, og það sé sambærilegt hinum Norðurlöndunum. 28. mars 2026 11:43 Inga vill skóla með aðgreiningu Verðandi mennta- og barnamálaráðherra talar fyrir aðgreindum skólum í þágu barna sem hafa ekki íslensku að móðurmáli, skólar án aðgreiningar séu börn síns tíma. Hún vill líta til Finnlands til að bæta íslenska menntakerfið sem hafi brugðist bæði nemendum og kennurum. 11. janúar 2026 14:00 Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira
Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæland Formaður Kennarasambands Íslands furðar sig á fullyrðingum menntamálaráðuneytisins um lengd skólaársins í íslenskum grunnskólum. Lögbundnir kennsludagar á Íslandi séu 180 talsins, það viti allir foreldrar grunnskólabarna, og það sé sambærilegt hinum Norðurlöndunum. 28. mars 2026 11:43
Inga vill skóla með aðgreiningu Verðandi mennta- og barnamálaráðherra talar fyrir aðgreindum skólum í þágu barna sem hafa ekki íslensku að móðurmáli, skólar án aðgreiningar séu börn síns tíma. Hún vill líta til Finnlands til að bæta íslenska menntakerfið sem hafi brugðist bæði nemendum og kennurum. 11. janúar 2026 14:00