Golf

Heiða Rakel vann sitt fyrsta háskólamót

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Heiða Rakel Rafnsdóttir fer vel af stað með skólaliði Grand Valley State University.
Heiða Rakel Rafnsdóttir fer vel af stað með skólaliði Grand Valley State University. Grand Valley State University

Heiða Rakel Rafnsdóttir, úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar, hóf háskólaferil sinn með glæsibrag þegar hún fagnaði sigri í fyrsta móti sínu fyrir Grand Valley State University-skólann í Bandaríkjunum.

Heiða var á meðal keppenda á UMSL Spring Invitational-mótinu sem fór fram á Norwood Hills CC – East-vellinum dagana 12.-13. apríl.

Heiða endaði samtals á einu höggi undir pari í mótinu. Eftir frábæran fyrsta hring upp á þrjú högg undir pari leiddi Heiða mótið með þremur höggum og hélt efsta sætinu allt til enda.

Heiða lék hringina þrjá á 68-75-69 höggum og varð einu höggi á undan Kamryn Shannon úr Ferris State-skólanum.

Lið Heiðu í Grand Valley State University vann einnig liðakeppni mótsins með sjö högga mun eða á 23 höggum yfir pari samtals.

Flottur árangur í þessu fyrsta móti Heiðu Rakelar í bandaríska háskólagolfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×