McIlroy varði Masters-titilinn Valur Páll Eiríksson skrifar 12. apríl 2026 22:55 Rory McIlroy er Masters-meistari. Aftur. Hector Vivas/Getty Images Rory McIlroy fagnaði sigri á Masters-mótinu í golfi á Augusta-vellinum í Georgíu eftir stöðuga spilamennsku á fjórða og síðasta hring mótsins í dag. Miklar sviptingar urðu á hringnum en McIlroy stóðst pressuna. Hann er sá fyrsti til að verja Masters-titilinn síðan Tiger Woods gerði það árið 2002.
McIlroy sló met þegar hann leiddi með sex höggum eftir annan hring mótsins á föstudag en staðan á toppnum jafnaðist mjög eftir strembinn hring hans í gær. McIlroy og Cameron Young voru jafnir á toppnum fyrir hring dagsins á ellefu undir pari en þónokkrir kylfingar fylgdu fast á hæla þeirra. McIlroy fékk fugl á þriðju braut og þeir Young jafnir þá. Síðan fylgdu skrambi á fjórðu og skolli á þeirri sjöttu, McIlroy á tveimur yfir pari í dag og hann féll niður í fjórða sæti. Heróp McIlroys eftir lokaholuna.Andrew Redington/Getty Images Justin Rose minnti á sig um leiddi um stund. Hann náði tveggja högga forystu eftir fugl á níundu braut. McIlroy var ekki lengi í fjórða sætinu þar sem hann fékk fugl á bæði sjöundu og áttundu braut og gerði það einnig á tólftu og þrettándu. Aðrir gáfu eftir og McIlroy var eftir seinni fuglinn með tveggja högga forystu á 13 undir. Scottie Scheffler var næstur á ellefu undir eftir að hafa leikið á 68 höggum í dag. Forysta McIlroy hélt til loka. Það var smá stress í upphafshöggi hans á lokaholunni og kúlan lenti á slæmum stað í trjánálum við innan um tré. Annað höggið fór beint í glompu og það fór um mann og annan. Höggið þaðan fór inn á flöt og hann hafði tvö högg til að klára dæmið. Hann mátti fá skolla þar sem forystan á Scheffler var tvö högg. Það hafðist. McIlroy fékk skollann en það skipti engu, brosið var breitt og sigurinn vís á ný annað árið í röð. Scheffler varð annar en þar á eftir voru Justin Rose, Cameron Young, Russell Henley og Tyrrell Hatton á tíu undir pari vallar en Hatton lék þeirra best, á sex undir í dag. McIlroy kláraði alslemmuna þegar hann fagnaði sigri á Masters í fyrra og vinnur mótið nú í annað sinn. Hann er sá fyrsti til að verja Masters-titilinn í 24 ár en Tiger Woods gerði það árið 2002. McIlroy er aðeins sá fjórði í sögunni sem nær að verja Masters-titilinn á eftir Woods, Jack Nicklaus og Nick Faldo. Um er að ræða sjötta risatitil McIlroy á ferlinum.
Masters-mótið Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira