Sögulegt forskot McIlroy að gufa upp Sindri Sverrisson skrifar 11. apríl 2026 21:02 Rory McIlroy hóf daginn með sex högga forskot á toppnum. Getty/Maddie Meyer Rory McIlroy er enn efstur á Masters mótinu, hálfnaður með þriðja hring, en sögulega forskotið sem hann hafði eftir fyrstu tvo hringina hefur snarminnkað.
Norður-Írinn var á -12 höggum eftir fyrstu tvo dagana, sex höggum á eftir næstu mönnum, Sam Burns og Patrick Reed, en enginn hefur áður haft svo mikið forskot þegar mótið er hálfnað. McIlroy hóf hins vegar þriðja hringinn á að fá skolla en bætti fyrir það með fugli á þriðju braut. Hann fékk par á hinum sjö af níu fyrstu holunum og er því enn á -12 höggum. Lowry fór holu í höggi Fast á hæla McIlroy koma nú Cameron Young, á -10 höggum eftir 13 holur í dag, og þeir Shane Lowry og Haotong Li sem eru á -9 höggum, eftir 10 og 12 holur. Lowry gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 6. braut. Það er í annað sinn sem Lowry afrekar það á Augusta National vellinum og í fimmta sinn á ferlinum sem hann nær holu í höggi. Burns fékk tvo fugla á fyrstu átta holunum og er samtals á -8 höggum en Reed er með öllu skrautlegra skorkort því hann byrjaði á þremur fuglum og fékk svo tvo skolla, og er samtals á -7 höggum eftir 10 holur í dag. Keppnin heldur áfram í beinni útsendingu á Sýn Sport en hægt er að sjá stöðuna með því að smella hér.
Golf Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira