Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. apríl 2026 06:34 Þúsundir hafa látið lífið í árásum Ísraels á skotmörk í Líbanon og þá eru fleiri en milljón íbúar á vergangi. Getty/Alfons Cabrera Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael.
Stjórnvöld í Líbanon segjast hins vegar staðráðin í því að afvopna Hezbollah. Að minnsta kosti 2.055 hafa látist í árásum Ísrael á skotmörk í Líbanon á síðustu vikum, þeirra á meðal 165 börn og 87 heilbrigðisstarfsmenn. Fleiri en milljón eru á vergangi. Herkví Bandaríkjamanna á Hormuz-sundi hófst í gær en hún nær til skipa sem leggja frá höfnum og ströndum Íran. Öðrum skipum verður leyft að ferðast um sundið óhindrað. Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt því fram í Hvíta húsinu í gær að fulltrúar Íran hefðu sett sig í samband við stjórnvöld vestanhafs og væru nokkuð örvæntingafullir varðandi það að ná samningum. Trump sagði Bandaríkjastjórn hins vegar ekki munu ganga að samkomulagi sem gerði Írönum kleift að eignast kjarnavopn. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, er sagður hafa rætt við utanríkisráðherra Frakklands, Þýskalands, Sádi Arabíu, Óman og Katar um tillögur Íran í friðarviðræðunum við Bandaríkjamenn á dögunum. Hann er sagður hafa lagt áherslu á að Íranir teldu viðræðurnar ekki hafa verið komnar í þrot. Stjórnvöld í Íran hafa þó harðlega gagnrýnt herkví Bandaríkjamanna og segja hana brjóta gegn alþjóðalögum. Þá hafa fregnir borist af því að fulltrúi Írana við Sameinuðu þjóðirnar hafi krafist skaðabóta frá þeim ríkjum sem Íranir segja hafa tekið þátt í aðgerðum Bandaríkjanna og Ísrael, þeirra á meðal Sádi Arabíu, Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Líbanon Íran Bandaríkin Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira