Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Lovísa Arnardóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 8. apríl 2026 20:24 Ágúst segir horfurnar ekki góðar fyrir eldsneytisneytendur sé Hormússundið alveg lokað á ný. Vísir/Sigurjón Hagfræðingur hjá ASÍ segir enn margt óljóst hvað varðar lokun Hormússunds og áhrifum þess á bensínverð. Sé lokun aðeins tímabundin geti það leitt til lægra bensínverðs en haldi vopnahléið ekki og lokunin haldi áfram megi búast við áframhaldandi hækkunum á bensínverði.
Bandaríkin og Íran samþykktu tveggja vikna vopnahlé á ellefta tímanum í gærkvöldi með skilyrði Bandaríkjaforseta um opnun Hormússunds. Bæði Bandaríkin og Íran lýstu yfir sigri í kjölfar samkomulagsins en ítrekuðu þó að varanlegur friður væri enn sem komið er ekki tryggður. Óljóst er hvort vopnahléð haldi þar sem greint var frá því í dag að umferð um Hormússund hefði verið stöðvuð á nýjan leik. Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði um fimmtán prósent eftir að vopnahléð var samþykkt í gær. Samkvæmt samantekt verðlagseftirlits Alþýðusambandsins hefur bensínverð hér á landi hækkað um 13 prósent frá áramótum. Þá hefur vikumeðaltal lægsta bensínverðs hækkað um 29,6 krónur í mars. „Ég myndi gera ráð fyrir áframhaldandi þróun eins og við höfum séð í mars, sem er miður þá fyrir eldsneytisneytendur og þá sem eru með verðtryggð lán,“ segir Ágúst Arnórsson, hagfræðingur hjá ASÍ, um það hvað gerist hafi vopnahléið strax verið rofið. Rætt var við Ágúst í kvöldfréttum Sýnar. Hann segist ekki sjá annað en að þróunin verði „tits up“ sem er breskt slangur og þýðir í raun að allt sé í volli. Skipti máli hvort sundið sé alveg lokað „Það er allt á reiki, það er mjög lítið hægt að segja,“ segir hann og það sé til dæmis ekki vitað hvort sundið sé alveg lokað eða hvort eitthvað fari í gegn. Það skipti verulegu máli og það séu of margir óvissuþættir. „En við vitum hvað þessi skerðing á framleiðslu í Mið-Austurlöndum hefur þýtt og skerðing á sendingum líka, flutningi, það fer bara eina leið og það er upp.“ Sé lokunin aðeins tímabundin sé myndin önnur. Þá geti neytendur búist við því að hráolíuverð lækki og það leiði til lækkunar bensínsverðs en það sé útlit fyrir að það hafi verið sett stopp á þessa þróun. Hráolíuverð hafi lækkað um fimmtán prósent í morgun en það hafi ekki skilað sér hér þar sem bensín hækkaði um tvær krónur. „Þessar björtu horfur rötuðu allavega ekki inn í verðið í dag,“ segir Ágúst og að það hafi verið óvænt.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Fjármál heimilisins Efnahagsmál Neytendur Tengdar fréttir Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Bensínverð hefur hækkað um þrettán prósent frá áramótum samkvæmt tölum Alþýðusambands Íslands. Sú hækkun kom nær öll fram í síðasta mánuði eftir að Bandaríkjamenn og Ísraelar fóru með vopnum gegn Írönum sem keyrði upp heimsmarkaðsverð á olíu. 8. apríl 2026 11:47 Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. 8. apríl 2026 20:08 Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Tugir eru sagðir fallnir og hundruð særð eftir að Ísraelsher gerði fyrirvaralausar loftárásir á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar segja að vopnahlé sem þeir gerðu við Írani í gær nái ekki til árása þeirra á Hezbollah-samtökin í Líbanon. 8. apríl 2026 13:57 Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira
Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Bensínverð hefur hækkað um þrettán prósent frá áramótum samkvæmt tölum Alþýðusambands Íslands. Sú hækkun kom nær öll fram í síðasta mánuði eftir að Bandaríkjamenn og Ísraelar fóru með vopnum gegn Írönum sem keyrði upp heimsmarkaðsverð á olíu. 8. apríl 2026 11:47
Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. 8. apríl 2026 20:08
Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Tugir eru sagðir fallnir og hundruð særð eftir að Ísraelsher gerði fyrirvaralausar loftárásir á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar segja að vopnahlé sem þeir gerðu við Írani í gær nái ekki til árása þeirra á Hezbollah-samtökin í Líbanon. 8. apríl 2026 13:57