Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Kristján Már Unnarsson skrifar 7. apríl 2026 21:21 Robert Howe, forstjóri Bremenports, og Lars Stemmler, yfirmaður alþjóðaverkefna Bremenports. Sigurjón Ólason Fulltrúar þýska félagsins Bremenports eru enn áhugasamir um uppbyggingu alþjóðahafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes og segja aðstæður þar ákjósanlegar. Þetta kom fram á íbúafundi á Þórshöfn í síðustu viku en Þjóðverjarnir nýttu einnig Íslandsheimsóknina til að funda með fulltrúum forsætisráðuneytis.
Í kvöldfréttum Sýnar var rifjað upp að aldarfjórðungur er frá því stórskipahöfn í Gunnólfsvík fór fyrst inn á aðalskipulag. Fyrir tólf árum var ritað undir samstarfsyfirlýsingu í Ráðherrabústaðnum við Bremenports um að hefja rannsóknir vegna hafnargerðar. Fyrir sjö árum var á hafnarbakkanum á Þórshöfn ritað undir samning um stofnun þróunarfélags Finnafjarðarhafnar. Frá Þórshöfn á Langanesi í apríl 2019. Fulltrúar Langanesbyggðar, Vopnafjarðarhrepps, þýska hafnarfélagsins Bremenports og verkfræðistofunnar Eflu undirrituðu þá samning um stofnun þróunarfélags um uppbyggingu alþjóðlegrar stórskipahafnar í Finnafirði.Efla Lítið hefur gerst síðan. Fyrir þremur árum sagði fulltrúi Bremenports Finnafjörð fastan í þagnarmúr þáverandi ríkisstjórnar.Í síðustu viku buðu Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur til sameiginlegs íbúafundar á Þórshöfn með fulltrúum Bremenports um stöðu málsins. Verkefnið er enn lifandi, eins og heyra má hér í frétt Sýnar: Upphaflegar hugmyndir um risahöfn vegna siglinga um Íshafið eða olíuhöfn eru þó ekki lengur í umræðunni. Núna er viðskiptahugmyndin sú að byrja á vindorkuveri. Höfnin kæmi svo í áföngum í framhaldinu. Umhverfismat er í gangi fyrir tvær vindmyllur á Sauðaneshálsi sem þýska fyrirtækið WPD hyggst reisa í tilraunaskyni til að undirbúa allt að 500 megavatta raforkuver. Orkan yrði nýtt til framleiðslu vistvæns rafeldsneytis fyrir skip. Hliðarverkefni yrði fiskeldisstöð á landi. Grafísk mynd af tveimur vindmyllum sem áformað er koma upp í tilraunaskyni á Sauðaneshálsi ofan Þórshafnar.wpd Ísland Forstjóri Bremenports, Robert Howe, og Lars Stemmler, yfirmaður alþjóðamála fyrirtækisins, nýttu Íslandsheimsóknina einnig til fundar í forsætisráðuneytinu með verkefnastjóra stórfjárfestinga, Karli Guðmundssyni. Einnig sat fundinn sérfræðingur á skrifstofu samhæfingar í ráðuneytinu. „Á fundinum voru stjórnvöld upplýst um stöðu málsins og sagt var frá íbúafundi í Langanesbyggð. Á fundinum kom fram að stjórnvöld munu áfram eiga samtöl um málið við sveitarfélög og þróunaraðila um þá þætti sem snúa að stjórnvöldum,“ segir Sighvatur Arnmundsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytis, spurður um fundinn í ráðuneytinu. Frá íbúafundinum á Þórshöfn í síðustu viku. Frá vinstri: Íris Edda Jónsdóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðar, Hafsteinn Helgason, sviðsstjóri viðskiptaþróunar hjá Eflu, Robert Howe, forstjóri Bremenports, Lars Stemmler, yfirmaður alþjóðamála Bremenports, Gunnar Már Gunnarsson, verkefnastjóri innviðamála í Langanesbyggð, og Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, varaoddviti Langanesbyggðar, sem var fundarstjóri.Langanesbyggð Fulltrúar Bremenports telja Finnafjarðarverkefnið ríma vel við áherslur stjórnvalda. „Við teljum að með verkefni okkar getum við stutt við framtíðarstefnu Íslands á sviði atvinnumála,“ segir Lars Stemmler. Tölvugerð mynd af höfn við Finnafjörð.Efla Hann segir aðstæður á norðausturhorni landsins henta vel fyrir slíka atvinnuuppbyggingu. „Þar á staðnum er mesta vindorka sem Ísland getur boðið upp á ásamt hagstæðu landslagi í kringum Finnafjörð.“ Rannsóknarholur voru grafnar við Finnafjörð sumarið 2015 til að kanna jarðveginn á fyrirhuguðu hafnarsvæði. Gunnólfsvíkurfjall í baksýn.Mynd/Friðrika Marteinsdóttir, Eflu Þegar kemur að tímaramma verkefnisins minnir Lars á að hafnirnar í Bremen og Bremerhaven hafi byggst upp á yfir tvöhundruð árum. „Það er tímarammi sem við getum hugsað okkur. Fyrir Finnafjörð kannski tíu eða fimmtán ár.“ Lars Stemmler er yfirmaður alþjóðaverkefna Bremenports.Sigurjón Ólason „Fyrst þurfum við að tryggja raforkuframboð þar og í næstu skrefum þurfum við að fara yfir í nýtingu og framkvæmd,“ segir Lars Stemmler. Hér má rifja upp fimmtán ára gamla frétt Stöðvar 2 um áform sveitarstjórnarmanna norðaustanlands:
Langanesbyggð Vopnafjörður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vindorka Orkumál Orkuskipti Skipaflutningar Vinnumarkaður Byggðamál Tengdar fréttir Segir Finnafjörð fastan í þagnarmúr ríkisstjórnar Framgangur hugmynda um stórskipahöfn í Finnafirði við Langanes tafðist vegna covid-faraldursins. Áform um að taka upp þráðinn á ný eru sögð stranda á því að engin áheyrn fáist hjá íslenska ríkinu. 10. apríl 2023 09:39 Áform um stóra vindmyllugarða milli Langaness og Vopnafjarðar Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar nú hugmyndir um að reisa hátt í þrjúhundruð vindmyllur á sex svæðum milli Langaness og Vopnafjarðar. Rætt er um að allt að eitt þúsund megavött raforku verði virkjuð í vindmyllugörðunum. 20. júlí 2021 23:03 Norðausturhornið ráði við að vaxa með Finnafjarðarhöfn Stórskipahöfn í Finnafirði myndi hafa gríðarleg áhrif á norðausturhorni landsins en er jafnframt ávísun á átök, jafnt heima í héraði sem og í landsmálaumræðunni. 12. apríl 2019 23:30 Stór áfangi að þjónustuhöfn Norðurslóða við Finnafjörð Oddviti Langanesbyggðar hefur fulla trúa á því að risahöfn við Finnafjörð verði að veruleika eftir að eitt stærsta hafnafyrirtæki Evrópu, Bremenports, ritaði undir samstarfssamning um að kosta mörghundruð milljóna króna undirbúningsvinnu. 22. maí 2014 22:00 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Fleiri fréttir Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Sjá meira
Segir Finnafjörð fastan í þagnarmúr ríkisstjórnar Framgangur hugmynda um stórskipahöfn í Finnafirði við Langanes tafðist vegna covid-faraldursins. Áform um að taka upp þráðinn á ný eru sögð stranda á því að engin áheyrn fáist hjá íslenska ríkinu. 10. apríl 2023 09:39
Áform um stóra vindmyllugarða milli Langaness og Vopnafjarðar Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar nú hugmyndir um að reisa hátt í þrjúhundruð vindmyllur á sex svæðum milli Langaness og Vopnafjarðar. Rætt er um að allt að eitt þúsund megavött raforku verði virkjuð í vindmyllugörðunum. 20. júlí 2021 23:03
Norðausturhornið ráði við að vaxa með Finnafjarðarhöfn Stórskipahöfn í Finnafirði myndi hafa gríðarleg áhrif á norðausturhorni landsins en er jafnframt ávísun á átök, jafnt heima í héraði sem og í landsmálaumræðunni. 12. apríl 2019 23:30
Stór áfangi að þjónustuhöfn Norðurslóða við Finnafjörð Oddviti Langanesbyggðar hefur fulla trúa á því að risahöfn við Finnafjörð verði að veruleika eftir að eitt stærsta hafnafyrirtæki Evrópu, Bremenports, ritaði undir samstarfssamning um að kosta mörghundruð milljóna króna undirbúningsvinnu. 22. maí 2014 22:00