Að kljúfa þjóð í herðar niður Ingólfur Sverrisson skrifar 7. apríl 2026 10:00 Á sama hátt og oflátungsháttur fer okkur Íslendingum fremur illa er minnimáttarkenndin engu betri. Drambsemi um eigið ágæti getur gert einstaklinga og heilar þjóðir broslegar í augum annarra, jafnvel hlægilegar og þegar verst gegnir orðið til þess að valda viðkomandi miklu tjóni. Þetta þekkjum við frá því að við reyndum að telja okkur og raunar heimbyggðinni allri trú um að hér á Íslandi hefði okkur tekist að þróa hagkerfi og gjaldmiðil sem væri göldrum lík og byggði á arfleifð allar götur frá víkingaöld sem færði okkur hagsæld sem bæri af öðru á því sviði um víða veröld. Peningar streymdu frá útlöndum því margir trúðu þjóðsögunni. En svo sprakk blaðran og Ísland varð að athlægi, gekk síðan í gegnum mikla kreppu eins og kunnugt er. Nú um stundir leggja margir hins vegar áherslu á að við séum tæpast mælandi málum í alþjóðasamstarfi vegna þess hve fámenn við erum og lítilsmegandi við hlið stærri þjóða. Hamrað er á því að Ísland ráði ekki yfir meira en fimm prósent atkvæða innan ESB ef til kæmi og þess vegna verði barið á okkur þar eins og værum við harðfiskur milli steins og sleggju. Þetta hugleysi hefði eflaust þótt gagnslítið veganesti þegar þjóðin sameinaðist um að færa út landhelgina og fór í það verkefni með sjálfstraustið sem veganesti en gleymdi sér ekki í því hvað fámenn og umburðarlítil við vorum við ysta haf. Forystumenn og landsmenn allir þöndu þess í stað út brjóstkassann, undirbjuggu málefnalega baráttu vel og höfðu loks sigur sem nú endurspeglar alþjóðareglur um fiskveiðar þjóðana. Fljótt eftir að við urðum sjálfstæð þjóð árið 1944 eignuðumst við afburða íþróttamenn sem unnu Evróputitla og ekki má gleyma þegar Vilhjálmur Einarsson setti Olympíumet í þrístökki og náði silfurverðlaunum. Ekki voru þessir kappar sífellt að klifa á því hvað við værum lítil og vanmáttug og gætum því ekki att kappi við aðra. Öðru nær. Þess vegna stóðu þeir oft uppi sem sigurvegarar og stolt sinnar þjóðar. Læðupokahátturinn fékk ekkert svigrúm og heldur ekki oflátungshátturinn sem er líka eitt einkenni minnimáttarkenndarinnar. Ein afleiðing þessa ástands er að þjóðin er nú klofin í herðar niður þar sem annar helmingurinn getur nýtt sér alþjóðagjaldmiðla (evru og dollar) og starfar þar af leiðandi í mun hagstæðara umhverfi en hinn helmingurinn er lokaður inni í krónuhagkerfinu. Á þann hópinn eru auk þess lagðar allar álögur sem landsmönnum er gert að axla vegna verðbólgunnar sem auðvitað er öllum íbúum þessa lands að kenna en ekki einasta þeim sem stjórnvöld halda föstum inni í krónuhagkerfinu með öllum sínum háu vöxtum og öðrum gjöldum sem fylgja því að halda uppi krónunni. Það verður þó að kallast hámark hræsninnar þegar þeir sem nýta sér evruna eða dollar telja nauðsynlegt að afgangur þjóðarinnar búi við krónuna áfram þó þeir sjálfir hlægi inn í sig og lifi í allt öðrum og hagstæðari heimi. Lítið er geð guma og tæpast hægt að tala um álitlega framtíð með þessari aðskilnaðarstefnu sem framkallar eitt mesta óréttlæti í einu þjóðfélagi af mannavöldum sem vitað er um allt frá því Þorgeir sálugi á Ljósavatni var sendur undir feldinn um árið til að ákveða hvaða trú þjóðin ætti að halla sér að. Hann komst að niðurstöðu og öll þjóðin laut henni án þess að mögla og tók nýja trú og siði sem henni fylgdu. Liðu svo aldirnar þangað til trúin á minnsta gjaldmiðil í heiminum tók við og reynt að sannfæra fólk um að hann sé trygging fyrir sjálfstæði þjóðarinnar og fullveldi Íslands – ekkert minna. Eftir sem áður geta útvaldir áfram haft sína hentisemi og brúkað evrur eða dollar rétt eins og þeir sem ekki tóku kristna trú umsvifalaust á sínum tíma en máttu blóta Þór og Óðinn ef þeir gerðu það á laun. Feluleikurinn er sem sagt enn í gildi og tvískinnungurinn sem honum fylgir í hávegum hafður. Í því ljósi er mikilvægara en nokkru sinni áður að svifta hulunni af þessum blekkingarleik og koma okkur að fullu inn í hóp annarra fullvalda þjóða sem mynda Evrópusambandið en líða ekki mismunun eins og hér hefur verið gerð að einskonar þjóðaríþrótt. Þá verður vonandi aftur einn siður í landinu okkar góða og allir jafnir en ekki bara sumir. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður Samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar