Framsókn næði ekki inn á þing Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 2. apríl 2026 19:37 Fylgi Framsóknarflokksins mælist 4,7 prósent samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Vísir/Lýður Valberg Framsóknarflokkurinn mældist ekki inni á þingi ef gengið yrði til kosninga í dag samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn mælist með 4,7 prósenta fylgi, sem er nærri tveimur prósentustigum minna en í síðasta þjóðarpúlsi.
Ríkisútvarpið greinir frá niðurstöðum þjóðarpúlsins en þar er vakin athygli á að samkvæmt þeim næðu einungis fimm flokkar inn á þing, í fyrsta sinn frá 2009. Þá dyttu um fjórtán prósent atkvæða niður dauð, sem samsvarar fylgi níu þingmanna. Samkvæmt niðurstöðum þjóðarpúlsins mælist Samfylkingin með þrjátíu prósenta fylgi, Miðflokkurinn með 21 prósent og Sjálfstæðisflokkurinn með tæp tuttugu prósent. Viðreisn mælist með tíu prósenta fylgi og Flokkur fólksins 5,8 prósent. Þá mælast hvorki Framsóknarflokkurinn né Vinstri græn inni á þingi, en Framsókn mælist sem fyrr segir með 4,7 prósenta fylgi og Vinstri græn 4,3 prósent. Fram kemur að ríflega helmingur svarenda sem tóku afstöðu styðji ríkisstjórnina. Samanborið við síðasta þjóðarpúls bætir Samfylkingin við sig um einu og hálfu prósentustigi og Sjálfstæðisflokkurinn sömuleiðis. Fylgi Viðreisnar dalar um tæpt prósentustig. Fylgi Flokks fólksins og Vinstri Grænna stendur í stað og fylgi Miðflokksins hækkar lítillega. Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Maskínu, sem framkvæmd var frá lokum febrúar fram yfir miðjan mars, mælist Samfylkingin með 25,5 prósent, Miðflokkurinn með 18,4 prósent og Sjálfstæðisflokkurinn 16,1 prósent. Þá mælist Viðreisn með fjórtán prósent, Framsókn með 7,1 prósent og Flokkur fólksins 5,8 prósent. Könnun Gallup var framkvæmd 2.-31. mars. Ekki liggur fyrir hve margir svarendur voru. Fréttin hefur verið uppfærð.
Skoðanakannanir Framsóknarflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Vinstri græn Flokkur fólksins Miðflokkurinn Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira