Gaf stoðsendingu á son sinn og setti enn eitt metið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. mars 2026 22:33 Feðgarnir LeBron og Bronny James hafa fengið að spila saman alvöru mínútur í meiðslavandræðum Los Angeles Lakers að undanförnu. Getty/ Ronald Martinez LeBron og Bronny James náðu fyrstu feðgatengingu í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta.
NBA-deildin segir að LeBron James hafi gefið fyrstu stoðsendingu milli feðga í sögu deildarinnar þegar hann sendi boltann á Bronny James sem skoraði þriggja stiga körfu í öðrum leikhluta í leik Los Angeles Lakers gegn Brooklyn. Feðgarnir í liði Lakers spiluðu saman mikilvægar mínútur í öðrum leiknum í röð þegar Lakers sneri aftur heim eftir vel heppnaða keppnisferð. BRONNY ➡️ LEBRON ➡️ BRONNYTHE FIRST FATHER-SON ASSIST IN NBA HISTORY! pic.twitter.com/qWGcYLayLi— NBA (@NBA) March 28, 2026 Bronny James var inni á vellinum með föður sínum í tæpar fjórar og hálfa mínútu eftir að þeir komu saman inn á í byrjun annars leikhluta. Báðar kynslóðir skoruðu á meðan þær spiluðu saman. LeBron skoraði úr sniðskoti áður en hann og Bronny skiptust á sendingum í næstu sókn, sem lauk með því að Bronny setti niður þriggja stiga skot. „Ég tek þessu ekki sem sjálfsögðum hlut. Þetta eru tveir leikir í röð þar sem hann spilar mikilvægar mínútur og hann átti líka aðra góða sókn. Klárlega flott augnablik fyrir okkur og líka fyrir fjölskylduna okkar,“ sagði LeBron um fyrstu feðgastoðsendinguna í sögu NBA. Bronny James hefur að mestu spilað þegar úrslit eru ráðin á þessu tímabili, hans öðru með Lakers, en hefur einnig spilað með G-deildarliði félagsins á tímabilinu. En þar sem byrjunarliðsbakvörðurinn Marcus Smart hefur verið frá vegna meiðsla síðustu tvo leiki fékk Bronny mínútur í leikjum Lakers gegn Indiana og Brooklyn í þessari viku. LeBron og Bronny eru líka fyrstu feðgarnir til að spila í NBA-deildinni á sama tíma, hvað þá í sama liði. Hinn 41 árs gamli LeBron James er að spila sitt 23. tímabil í deildinni og er að skila 20,9 stigum, 6,9 stoðsendingum og 6,0 fráköstum að meðaltali í leik. “Not taking it for granted …. That’s two games back-to-back playing meaningful minutes and him, also, making another play … Definitely a cool moment for us and also for our family” - LeBron on the first father-son assist in NBA history, passing to Bronny for a 3 pic.twitter.com/S67X5ajosD— Dave McMenamin (@mcten) March 28, 2026
NBA Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira