Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Samúel Karl Ólason skrifar 26. mars 2026 23:23 Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar. Vísir/Bjarni Forsvarsmenn Klíníkurinnar telja það ekki hagkvæma lausn að eiga í samstarfi við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur legurýma. Þjónustan sé of frábrugðin starfsemi Klíníkurinnar og kalli á of mikla uppbyggingu hvað varðar aðbúnað og mannafla. Meðal annars þyrfti að gera miklar breytingar á húsnæði fyrirtækisins og þar að auki yrði um tiltölulega litla rekstrareiningu að ræða.
Hún yrði því bæði óhagkvæm og þá bæði fyrir Klíníkina og ríkið. Viðræður hafa átt sér stað um að Klíníkin gæti létt undir með Landspítalanum vegna flæðisvandans svokallaða. Fjöldi fólks liggur inni á spítalanum og bíður eftir hjúkrunarrými. Í febrúar voru þegar mest voru 120 að bíða eftir rými. Þá sagði Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar, að stutt gæti verið í samninga. Sjá einnig: Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Í tilkynningu sem Kristján sendi út í kvöld segir að í viðræðum við fagfólk með reynslu af rekstri hjúkrunarheimila hafi ýmislegt komið í ljós sem sýnt hafi fram á að rekstur legurýma væri ekki hagkvæmur. Það hefði kallað á umfangsmiklar breytingar á húsnæði Klíníkurinnar, verulega fjölgun starfsfólks og sett fyrirtækið í samkeppni við ríkið og hjúkrunarheimili um sérhæft starfsfólk. „Slík þróun yrði vart til þess fallin að bæta stöðuna í kerfinu í heild, heldur gæti þvert á móti aukið á þann vanda sem þegar er fyrir hendi. Jafnframt er ljóst að um tiltölulega litla rekstrareiningu yrði að ræða sem væri óhagkvæm, bæði fyrir Klíníkina sjálfa og hið opinbera.“ Þess vegna var ákveðið að ráðast ekki í þessa starfsemi, samkvæmt áðurnefndri tilkynningu. Aðrir séu betur í stakk búnir til að sinna þessari þjónustu með skilvirkum hætti. „Það breytir þó ekki því að fjölmörg tækifæri felast í annars konar samstarfi við heilbrigðisyfirvöld. Klíníkin hefur þegar kynnt hugmyndir þess efnis, þar sem lögð er áhersla á betri nýtingu þeirra legurýma sem fyrir eru. Þar má meðal annars nefna móttöku sjúklinga sem þarfnast endurhæfingar, þar sem öflug sjúkraþjálfun Klíníkurinnar gæti nýst vel, sem og aukna nýtingu skurðstofa fyrir tilteknar aðgerðir,“ segir í tilkynningunni. Þannig gæti verið hægt að bæta skipulag og flæði sjúklinga, stytta biðtíma og draga úr álagi á bráðamóttöku og legudeildir. Þá segir í tilkynningunni að forsvarsmenn Klíníkurinnar séu áfram opnir fyrir samtali um samstarf sem samræmist betur núverandi starfsemi fyrirtækisins. „Með slíkri nálgun telur Klíníkin að unnt sé að nýta krafta hennar með markvissari hætti, létta á álagi í heilbrigðiskerfinu og bæta þjónustu við sjúklinga til lengri tíma litið.“
Landspítalinn Heilbrigðismál Eldri borgarar Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira