Dorrit sprengir skvísuskalann á skíðum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. mars 2026 16:01 Dorrit Moussaieff er glæsileg á skíðum í Aspen, Colorado. Instagram Skartgripadrottningin og fyrrverandi forsetafrúin Dorrit Moussaieff nýtur sín á skíðum í sólinni í Aspen í Colorado-fylki þessa dagana. Hún hefur verið dugleg að deila skemmtilegu myndefni á samfélagsmiðlum þar sem hún rokkaði meðal annars stuttbuxur og íslenska lopapeysu.
Á Instagram leitaði Dorrit eftir þeim sem hafði prjónað peysuna handa henni og í athugasemdum við færsluna kom í ljós að það var kona að nafni Helga Steinþórsdóttir. Glæsileg lopapeysa úr smiðju Helgu Steinþórsdóttur sem Dorrit parar saman við ljósbrúnt pils, loðhatt og skauta.Instagram Dorrit er með best klæddu konum landsins og alltaf samkvæm sjálfri sér í fatavali. Hún birti skemmtilega mynd af sér í skíðabrekkunni þar sem hún rokkaði gallastuttbuxur við köflótta skyrtu og belti og naut þess greinilega að skíða léttklædd í sólinni. Glæsileg á skíðum.Instagram Þá var hún ánægð að sjá uppáhalds húðvörur sínar frá íslenska húðvörumerkinu Bioeffect til sölu í Aspen og birti færslu á Instagram þar sem hún hvetur fólk til að heimsækja verslunina á Íslandi. Á þeirri mynd skartaði hún hvítum skíðabuxum við hvítt dúnvesti og íslensku lopapeysuna undir. Algjör töffari. Dorrit var ánægð að sjá Bioeffect vörur í Aspen, Colorado.Instagram
Tíska og hönnun Skíðasvæði Bandaríkin Ólafur Ragnar Grímsson Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Fleiri fréttir María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira