Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Árni Sæberg og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 20. mars 2026 10:48 Brynjar hjá slökkviliðinu segir húsið hafa verið hannað til að gefa eftir. Vísir/Bjarni Sá hluti húsnæðis Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík sem stórt gat myndaðist á í sprengingu í morgun er hannaður til þess að gefa eftir í sprengingu. Tveir þeirra sem slösuðust voru í þeim hluta byggingarinnar. Annar þeirra er alvarlega slasaður. Sá þriðji var fyrir utan húsið þegar viðbragðsaðila bar að garði og gekk sjálfur inn í sjúkrabíl.
Þetta segir Brynjar Friðriksson, sviðsstjóri aðgerðasviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu á vettvangi. Tilkynning barst laust upp úr klukkan 07 í morgun um öfluga sprengingu í Korngörðum. Brynjar segir að allt tiltækt lið slökkviliðs hafi verið sent á vettvang og allir dælubílar, þrátt fyrir að enginn eldur hafi verið í húsinu. „Af því að við náttúrulega vitum ekkert í upphafi hvað er í gangi. Við fáum bara tilkynningu um sprengingu og sendum þá sem við getum til að reyna að mæta því.“ Fyrir hendingu hafi tvær vaktir einmitt verið að mætast þegar útkallið barst og því hafi allt að þrjátíu manns frá slökkviliðinu farið á vettvang. Vettvangurinn óbreyttur Vettvangurinn sé nú óbreyttur frá því hvernig hann var þegar viðbragðsaðila bar að. Stórt gat hafi verið á einni hlið hússins og þil sem sprakk út hafi legið á lægra þaki hússins fyrir neðan gatið. Myndir frá vettvangi má sjá í spilaranum hér að neðan: Átti að gefa eftir Gatið virðist gefa nokkuð skakka mynd af krafti sprengingarinnar. „Þetta er sem sagt bygging með tveimur sílóum og þessi partur af byggingunni er byggður þannig að hann á að gefa eftir ef það verður sprenging,“ segir Brynjar. Vinna við að tryggja vettvanginn sé nú í fullum gangi, meðal annars við að fergja þilið sem sprakk út úr hlið hússins til þess að koma í veg fyrir foktjón. Vettvangurinn verði svo afhentur lögreglu til rannsóknar og í kjölfarið tryggingafélagi og eiganda hússins.
Slökkvilið Lögreglumál Reykjavík Sprenging hjá Fóðurblöndunni Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira