Körfubolti

Frið­rik Leó og fé­lagar fóru auð­veld­lega yfir fyrstu hindrunina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Friðrik Leó Curtis þarf að bíða þolinmóður eftir mínútum hjá Nebraska.
Friðrik Leó Curtis þarf að bíða þolinmóður eftir mínútum hjá Nebraska. Getty/Steven Branscombe

Friðrik Leó Curtis og liðsfélagar hans í Nebraska-skólanum unnu sannfærandi sigur í fyrstu umferð úrslitakeppni bandaríska háskólaboltans í kvöld

Nebraska, sem var raðað númer fjögur í þessum hluta (suðurhluta sem klárast í Houston í Texas), vann 29 stiga sigur á Troy-skólanum sem var raðað númer þrettán. Þessi úrslit voru því eftir bókinni en sigurinn var engu að síður afar sannfærandi.

Nebraska-strákarnir voru komnir sextán stigum yfir í hálfleik, 41-25, og unnu að lokum sannfærandi 76-47 sigur.

Friðrik Leó er nýliði og fékk ekki að koma inn á fyrr en undir lok leiks. Hann spilaði síðustu einu mínútuna og 47 sekúndurnar.  Leó klikkaði á eina skoti sínu, sem var þriggja stiga skot, fékk eina villu og stal einum bolta.

Stigahæsti leikmaður liðsins var Pryce Sandfort með sjö þrista og 23 stig.

Nebraska mætir Vanderbilt eða McNeese í næstu umferð sem eru í raun 32 liða úrslit háskólaboltans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×