Sundskýlurnar slógu hitt liðið út af laginu og Almar komst áfram Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. mars 2026 10:02 Almar fagnar vel heppnuðu þriggja stiga skoti gegn SMU í nótt Dylan Buell/Getty Images Almar Orri Atlason og félagar í Miami Redhawks verða með í Marsfárinu, þar sem Ísland á fleiri fulltrúa í ár en nokkru sinni fyrr.
Almar og félagar frá Miami, Ohio, voru meðal fjögurra síðustu liðanna til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Það gerðu þeir með 89-79 sigri gegn SMU í nótt. Almar stóð sig með prýði, skoraði 12 stig á 24 mínútum, greip 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar auk þess að verja 1 skot. Það sem spilaði hvað mestan þátt í sigrinum var hins vegar frammistaða stuðningsmanna Redhawks. Sundlið skólans frá Miami hefur verið duglegt að mæta á leiki og lét sig ekki vanta í nótt, eins og sjá má hér fyrir neðan. Miami (OH) brought out the speedos to distract the free throw shooterIt’s a home game in Dayton https://t.co/QUxCTbtn25— Barstool Sports (@barstoolsports) March 19, 2026 Almar og félagar munu mæta Tennessee Volunteers í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í kvöld. Sjálfboðaliðarnir eru fyrirfram 6. besta liðið í Mið-Vesturhlutanum en Miami er þar í 11. sæti af 16 liðum. Þjálfari Miami segir fólki samt að búa sig undir óvænt úrslit, Miami gæti vel sett spárnar í uppnám. “We can advance deep into this tournament”Travis Steele is confident in his Miami (OH) Redhawks busting all your brackets pic.twitter.com/PsQ1EA4uhf— Barstool Sports (@barstoolsports) March 19, 2026 Tveir aðrir Íslendingar verða í eldlínunni með sínum skólum í Marsfárinu. Friðrik Leó Curtis og félagar í Nebraska Cornhuskers munu mæta Troy Trojans í fyrstu umferð Suðurhlutans. Cornhuskers eru taldir sigurstranglegri í þeim leik. Birgir Leifur Irving og félagar í High Point Panthers munu svo mæta Wisconsin Badgers í fyrstu umferð Vesturhlutans. Þar eru Panthers taldir ólíklegri til sigurs. Þrír fulltrúar í fárinu í ár Þeir Almar Orri, Birgir Leifur og Friðrik Leó verða fulltrúar Íslands í Marsfárinu sem er svo sannarlega afar vinsælt í Bandaríkjunum. Valsarinn Frank Aron Booker lék þar með Oklahoma-háskólanum fyrir rúmum áratug og svo Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson fyrir átta árum, með Davidson háskólanum. Helena Sverrisdóttir og Dagný Lísa Davíðsdóttir hafa einnig afrekað það kvennamegin, sem og Elísabeth Ýr Ægisdóttir sem fór með Liberty-háskólanum í 64-liða úrslitin í fyrra. Almar ræddi draumatímabilið í Sportpakkanum Í Sportpakkanum í gærkvöldi ræddi Almar Orri um þetta draumatímabil hjá Miami Redhawks, áður en þeir unnu SMU og tryggðu sig formlega inn í Marsfárið. Tímabilið hefur því orðið enn betra, en innslagið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira