Körfubolti

Sundskýlurnar slógu hitt liðið út af laginu og Almar komst á­fram

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Almar fagnar vel heppnuðu þriggja stiga skoti gegn SMU í nótt
Almar fagnar vel heppnuðu þriggja stiga skoti gegn SMU í nótt Dylan Buell/Getty Images

Almar Orri Atlason og félagar í Miami Redhawks verða með í Marsfárinu, þar sem Ísland á fleiri fulltrúa í ár en nokkru sinni fyrr.

Almar og félagar frá Miami, Ohio, voru meðal fjögurra síðustu liðanna til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Það gerðu þeir með 89-79 sigri gegn SMU í nótt.

Almar stóð sig með prýði, skoraði 12 stig á 24 mínútum, greip 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar auk þess að verja 1 skot.

Það sem spilaði hvað mestan þátt í sigrinum var hins vegar frammistaða stuðningsmanna Redhawks. Sundlið skólans frá Miami hefur verið duglegt að mæta á leiki og lét sig ekki vanta í nótt, eins og sjá má hér fyrir neðan.

Almar og félagar munu mæta Tennessee Volunteers í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í kvöld. Sjálfboðaliðarnir eru fyrirfram 6. besta liðið í Mið-Vesturhlutanum en Miami er þar í 11. sæti af 16 liðum.

Þjálfari Miami segir fólki samt að búa sig undir óvænt úrslit, Miami gæti vel sett spárnar í uppnám.

Tveir aðrir Íslendingar verða í eldlínunni með sínum skólum í Marsfárinu.

Friðrik Leó Curtis og félagar í Nebraska Cornhuskers munu mæta Troy Trojans í fyrstu umferð Suðurhlutans. Cornhuskers eru taldir sigurstranglegri í þeim leik.

Birgir Leifur Irving og félagar í High Point Panthers munu svo mæta Wisconsin Badgers í fyrstu umferð Vesturhlutans. Þar eru Panthers taldir ólíklegri til sigurs.

Þrír fulltrúar í fárinu í ár 

Þeir Almar Orri, Birgir Leifur og Friðrik Leó verða fulltrúar Íslands í Marsfárinu sem er svo sannarlega afar vinsælt í Bandaríkjunum.

Valsarinn Frank Aron Booker lék þar með Oklahoma-háskólanum fyrir rúmum áratug og svo Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson fyrir átta árum, með Davidson háskólanum.

Helena Sverrisdóttir og Dagný Lísa Davíðsdóttir hafa einnig afrekað það kvennamegin, sem og Elísabeth Ýr Ægisdóttir sem fór með Liberty-háskólanum í 64-liða úrslitin í fyrra.

Almar ræddi draumatímabilið í Sportpakkanum

Í Sportpakkanum í gærkvöldi ræddi Almar Orri um þetta draumatímabil hjá Miami Redhawks, áður en þeir unnu SMU og tryggðu sig formlega inn í Marsfárið. Tímabilið hefur því orðið enn betra, en innslagið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×