Körfubolti

Fékk bara að byrja einu sinni en var samt valin best

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Caitlin Clark í leik með bandaríska landsliðinu í undankeppni HM þar sem hún steig sín fyrstu skref með A-landsliðinu.
Caitlin Clark í leik með bandaríska landsliðinu í undankeppni HM þar sem hún steig sín fyrstu skref með A-landsliðinu. Getty/Alexa Alejandro

Bandaríska körfuboltakonan Caitlin Clark var útnefnd verðmætasti leikmaðurinn á sínu fyrsta móti með bandaríska landsliðinu.

Bakvörðurinn hafði strax mikil áhrif í sínum fyrstu skrefum með aðalliði Bandaríkjanna en hún hjálpaði landsliði sínu að vinna alla leiki sína í undankeppni heimsmeistaramótsins.

Clark stóð undir væntingum með frábærri frammistöðu fyrir ríkjandi meistara og það þrátt fyrir að fá bara að byrja einn af þessum fimm leikjum. 

Aðdáendur hennar voru margir hverjir mjög hneykslaðir á því hvernig hún var notuð á mótinu og í augum margra var eins og vísvitandi væri að reyna að halda henni niðri.

Þrátt fyrir góða frammistöðu byrjaði hún aðeins einn leik en kom inn af bekknum í fjórum. Það breytti þó ekki því að sérstök valnefnd valdi hana besta leikmann mótsins. 

Með Clark í úrvalsliðinu var liðsfélagi hennar Kelsey Plum auk Megan Gustafson frá Spáni, Cecilia Zandalasini frá Ítalíu og Imani McGee-Stafford frá Púertó Ríkó.

Clark klæddist þarna landsliðstreyjunni á ný í fyrsta sinn síðan hún var útnefnd verðmætasti leikmaður á heimsmeistaramóti nítján ára kvenna árið 2021.

Clark var með hæsta framlagið í bandaríska liðnu (14,6 í leik), var næststigahæst í liði Bandaríkjanna með 11,6 stig í leik (52,9 prósent skotnýting) og var með flestar stoðsendingar á mótinu, eða 6,4 að meðaltali. Hún náði þessum tölum á aðeins 21,2 mínútum í leik.

Bandaríska liðið var plús 109 stig með hana inni á vellinum á mótinu.

Heimsmeistaramótið fer síðan fram í Berlín í Þýskalandi seinna á þessu ári og þar er bandaríska landsliðið sigurstranglegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×