Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Samúel Karl Ólason skrifar 18. mars 2026 14:03 Með X-59 vonast starfsmenn NASA til að þróa leiðir til að rjúfa hljóðmúrinn án þeirra gífurlega láta sem því fylgir. Þá tækni gæti svo verið hægt að nýta í farþegaflug. NASA/Jim Ross Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) undirbúa aðra flugferð tilraunaflugvélarinnar X-59. Vonast er til þess að flugvél þessi eigi að geta rofið hljóðmúrinn án þess að því fylgi hinar hefðbundnu drunur og læti.
X-59 hefur einungis einu sinni áður verið flogið og var það í fyrra. Á þessu ári stendur til að framkvæma fleiri tilraunaflug og á að fljúga flugvélinni sífellt hraðar og hærra. Samkvæmt tilkynningu á vef NASA verður það tilraunaflugmaðurinn Jim „Clue“ Less sem flýgur X-59 í þessari annarri flugferð og stendur til að hann taki á loft frá Amstrong-rannsóknarstöð NASA í Kaliforníu á næstu dögum. Annar flugmaður um borð í F/A-18 Hornet herþotu verður einnig í loftinu og mun hann fylgjast með tilraunafluginu í háloftunum. Fyrst á að fljúga X-59 í tólf þúsund feta hæð og á 370 kílómetra hraða. Takist það verður stefnan sett á tuttugu þúsund fet og 418 kílómetra hraða. X-59 var fyrst flogið í október í fyrra. X-59 has officially completed its first flight ever!The @NASA X-59 quiet supersonic research aircraft took to the skies for the first time Oct. 28, marking a historic moment for the field of aeronautics research. ✈️A culmination of all the right stuff: https://t.co/lsc0Z0DG5c pic.twitter.com/HRA7JwSRJi— NASA Aeronautics (@NASAaero) November 19, 2025 Markmiðið með fleiri tilraunaflugum í framtíðinni er að svo stöddu að koma flugvélinni í 55 þúsund feta hæð og á 1,4-faldan hljóðhraða, eða 1.489 kílómetra hraða. Flugvélin var þróuð af sérfræðingum NASA og Lockheed Martin og er burðarliðurinn í svokölluðu Quesst-verkefni stofnunarinnar. Því verkefni er ætlað að þróa leiðir til að fljúga hraðar en á hljóðhraða án þess að því fylgi drunur og gífurleg læti. Reynist það svo að X-59 geti flogið hraðar en hljóð án tilheyrandi láta, stendur til að fljúga flugvélinni yfir byggðir í Bandaríkjunum og safna gögnum um upplifun fólks af því. NASA’s X-59 is prepping for its second flight ✈️NASA test pilot Jim “Clue” Less will pilot the X-59 for the second flight. The flight marks the beginning of “envelope expansion,” where the quiet supersonic jet will start flight testing at faster speeds and higher altitudes.… pic.twitter.com/2u5FbgOMiG— NASA Armstrong (@NASAArmstrong) March 17, 2026
Bandaríkin Tækni Fréttir af flugi Geimurinn Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira