Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Smári Jökull Jónsson skrifar 16. mars 2026 11:16 Inga Sæland og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar. Vísir/Vilhelm Enginn verður á biðlista eftir hjúkrunarrými árið 2029 samkvæmt nýrri framkvæmdaáætlun félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Barna- og menntamálaráðherra segir áætlunina marka þáttaskil í þjóðarátaki ríkisstjórnarinnar.
Barna- og menntamálaráðherra kynnti nýja framkvæmdaáætlun á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu Ísafold í morgun. Í tilkynningu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins kemur fram að um afar metnaðarfull markmið sé að ræða og áformin ýmsu háð og er skipulagshraði sveitarfélaga, hraði í útboðsferlum og uppbyggingarhraði nefnt í því samhengi. Í tilkynningunni kemur fram að rúmlega 1500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun fyrir lok árs 2030 og verða 1355 af þeim ný. Því verði 90% af þeim rýmum, sem tekin verða í gagnið, viðbót við þau hjúkrunarrými sem þegar eru til staðar á landinu. Á höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir 897 nýjum rýmum, 146 á Norðurlandi, 140 á Suðurnesjum, 72 á Suðurlandi, 60 á Vesturlandi, 20 á Vestfjörðum og 10 á Austurlandi. Segir áætlunina marka þáttaskil Þegar framkvæmdaáætlunin er skoðuð í samhengi við þróun biðlista til ársins 2030 má sjá að árið 2029 er gert ráð fyrir að biðlistar eftir hjúkrunarrými verði þá orðnir tómir. Áætlun um þróun biðlista gerir ráð fyrir að enginn verði á bið eftir hjúkrunarrými árið 2029.Heilbrigðisráðuneytið Þróun biðlista er sett í samhengi við metna þörf á hverju ári samkvæmt spám ráðuneytisins þar sem tekið er tillit til mannfjöldaþróunar og öldrun þjóðarinnar. Markmið stjórnvalda er að 75% einstaklinga með samþykkt færni- og heilsumat fái hjúkrunarrými innan 90 daga. „Áætlunin sem ég kynni í dag markar algjör þáttaskil í þjóðarátaki ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarrýma,“ er haft eftir Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra í tilkynningunni. „Ég hef lagt hug og hjarta í það að tryggja að fullorðna fólkið okkar fái notið allrar þjónustu og alúðar á elsta æviskeiðinu. Markmiðið er skýrt: Enginn á að þurfa að vera á biðlista og í óöryggi án umhyggju og þeirrar þjónustu sem okkur er skylt að veita,“ segir Inga sömuleiðis. Fjölmörgum áföngum hafi verið náð síðastliðið ár Samhliða kynningunni undirrituðu Inga Sæland og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, samning um nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri þar sem gert er ráð fyrir allt að 100 hjúkrunarrýmum. Áætlað er að það opni árið 2029. Í tilkynningu ráðuneytisins er tekið fram að uppbygging hjúkrunarheimila hafi með forsetaúrskurði færst yfir til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins þann 15. mars 2025 þar sem hann er enn. Með nýjum forsetaúrskurði frá 16. janáur síðastliðnum fer barna- og menntamálaráðherra hins vegar fyrir málaflokknum. Þá eru taldir upp ýmsir áfangar sem náðst hafi undanfarið ár, til að mynda um nýtt hjúkrunarheimili í Hveragerði, þreföldun rýma í Mosfelssbæ, stækkun hjúkrunarheimilisins Sóltúns í Reykjavík og viljayfirlýsingu um nýtt hjúkrunarheimili í Hafnarfirði.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hjúkrunarheimili Heilbrigðismál Eldri borgarar Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira