Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. mars 2026 06:49 Ísraelsher hefur verið að gera árásir á húsnæði í Beirút, sem hann segir tengjast Hezbollah. Getty/Adri Salido Ísraelsher hefur haldið árásum sínum á suðurhluta Líbanon áfram og hefur nú beint þeim tilmælum til íbúa á stóru svæði sem nær til nokkurra borga og fjölda þorpa að flýja heimili sín og halda norður.
Rýmingarviðvörunin nær allt að 40 kílómetra inn í Líbanon frá landamærunum, að ánni Zahrani. Ísraelsmenn hafa gert árásir á fjölda skotmarka sem þeir segja tengjast Hezbolla síðustu tíu daga og gefið í eftir að Íranir og Hezbollah gerðu samræmdar og umfangsmiklar árásir á Ísrael á miðvikudag. Talið er að um milljón manns hafi þegar flúið heimili sín í Líbanon og áætlað er að um 700 séu látnir og um 1.500 særðir. Íbúar í Beirút hafa lýst stöðugum sprengingum og erfiðleikum við að finna örugg svæði til að halla höfði. Yfirvöld í Ísrael hafa varað íbúa í Líbanon við því að von sé á enn frekari og jafnvel þyngri árásum. Þá eru forsvarsmenn Hezbollah sagðir undirbúa sig fyrir innrás Ísraelshers inn í landið. Stjórnvöld í Líbanon hafa fordæmt aðgerðir bæði Ísraelshers og Hezbollah og kallað eftir því að síðarnefndu láti af árásum sínum. Þau hafa sagst munu beita sér til að takmarka getu Hezbollah en Ísraelsmenn og Bandaríkjamenn eru sagðir hafa litla trú á getu þeirra til þess.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Bandaríkin Hernaður Líbanon Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Sjá meira