Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Freyja Þórisdóttir skrifar 12. mars 2026 21:15 Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaegenda, mætti í sett og ræddi verðlagningu á olíu. Hanna Andrésdóttir/Sýn „Þegar að heimsmarkaðurinn lækkar, þá virðist verðið svona síga niður eins og það sé verið að sleppa fjöður lausri, en þegar að verð hækkar, þá fer það frekar upp eins og raketta,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifereiðaeigenda. Hann mætti í sett kvöldfrétta Sýnar í kvöld.
Þar segir hann að þau í félaginu hafi gagnrýnt olíufélögin fyrir að hafa ekki „skilað eðlilegri lækkun á álagningu til neytenda þegar urðu skattabreytingar“. Hann hafði einnig orð á því að álagning hafi bein áhrif á landsmenn og að hver króna skili sér sem upphæð úr vasa neytenda yfir árið. Runólfur vitnar í greiningu sem Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur stéttarfélagsins Visku, birti í dag. Þar kemur fram að álagning á hvern bensínlítra hafi aukist verulega undanfarin fimm ár og hafi svo náð hæstu hæðum hingað til fyrstu tvo mánuði þessa árs. „Eldsneytisverð á Íslandi er einfaldlega miklu hærra en það þarf að vera vegna fákeppninnar sem einkennir íslenska markaðinn,“ segir Vilhjálmur í greiningunni. Runólfur vitnar í þessi orð Vilhjálms og segir það því miður vera rétt sem kom fram í gögnunum og að sömu atriði megi finna í gögnum Samkeppniseftirlitsins. Hann segir að þrátt fyrir að vera „enginn talsmaður opinberra afskipta af mörkuðum“ þá þurfi einhvers konar aðhald að koma til. Á Íslandi ríki í dag fákeppni þar sem að verðinu sé stýrt af einum aðila og að hinir fylgi í kjölfarið. „Við sjáum það á stærri mörkuðum, eins og til dæmis í Belgíu, Danmörku, Þýskalandi og bara mjög víða í Evrópu að stjórnvöld eru með puttann á svona neysluvöru eins og eldsneyti og setja jafnvel verðþak eins og í Belgíu. Það miðar þá við að verð megi ekki fara yfir það og enginn á markaðnum er að bjóða það verð. Þannig að allir sigla einhvers staðar þar undir,“ segir Runólfur.
Verðlag Bílar Bensín og olía Neytendur Mest lesið Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Fleiri fréttir Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Sjá meira