Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. mars 2026 16:15 Vinkonurnar fjórar eru loks komnar út af átakasvæðinu. Aðsend Fjórar vinkonur sem voru að hefja heimsreisu þegar þær festust á átakasvæði í Mið-Austurlöndunum hafa loks komist þaðan. Þær fréttu af því að þær hefðu fengið pláss í flugferð í útvarpinu, þurftu að komast yfir landamæri með ókunnugum heimamanni og dvelja á flugvelli í fleiri klukkustundir í hópi Rúmena.
Fréttastofa hefur fylgt eftir vinkonunum Hafdísi Önnu Hauksdóttur, Sigrúnu Hebu Þorkelsdóttur, Söru Björk Þórðardóttur og Magneu Steinunni H. Magnadóttur sem voru nýlagðar af stað í heimsreisu þegar sprengjur tóku að falla víða um Persaflóaríkin. Í dag eru þær komnar til Bangkok í Taílandi eftir viðburðaríkt ferðalag frá Dúbaí. Vinkonurnar voru í safarí nálægt Dúbaí fyrir rúmri viku síðar þegar þær fréttu að drunur sem þær heyrðu væri skotárás Írana sem voru að svara fyrir árásir Ísraela og Bandaríkjamanna. Fyrst stóð til að þær myndu fá sæti um borð í flugi frá Dúbaí á þriðjudeginum og síðar á miðvikudeginum en var báðum flugferðunum aflýst. Það var ekki fyrr en á fimmtudagsmorgun sem borgaraþjónustan hafði síðan samband við móður Sigrúnar en hún var á leið í útvarpsviðtal. „Við fréttum það í gegnum útvarpið að við hefðum fengið flug,“ segir Magnea í samtali við fréttastofu. „Við fórum að pakka saman áður en hún hringdi í okkur og lét vita. Við vorum bara svo ánægðar með að vera að komast í burtu.“ Átta eftirlitsstöðvar á leiðinni á flugvöllinn Við tóku tvær klukkustundir af „algjöru panikki“ líkt og þær lýsa því. Þær sjálfar og foreldrar þeirra, sem staddir eru á Íslandi, tóku að hringja í alla sem voru með einhverjar tengingar í Dúbaí. Flugferðin sem stóð þeim til boða var í Óman og því þurftu þær að útvega far þangað, sem er rúmlega fimm tíma akstur. „Það eru ekki margir sem bjóða upp á að keyra mann alla leiðina út að landamærunum,“ segir Magnea. Að lokum fundust tveir bræður sem voru tilbúnir að keyra vinkonurnar alla leið á flugvöllinn í Óman. Þær segjast allar afar fegnar að hafa haft heimamann með sér þar sem landamærin á milli Sameinuðu arabísku furstadæmanna og Óman séu afar flókin. „Við vissum ekkert hvað við vorum að fara gera og hvað við vorum að fara út í þegar við hoppuðum ú tí þennan bíl. Hann fylgdi okkur sem betur fer alla leið því það voru átta eftirlitsstöðvar á leiðinni. Við hefðum aldrei getað komist þarna í gegn sjálfar,“ segja þær. Á hverri stöð voru þær stoppaðar og beðnar um að svara spurningum á við yfirheyrslu. Þær komust þó í gegn og loks á flugvöllinn í Óman. Rúmenarnir rólegri „Flugið var klukkan fimm um morguninn en við mættum hálf ellefu að kvöldi til og enduðum með að vera á flugvellinum í níu klukkutíma. Það var alveg smá erfitt eftir allt stressið,“ segir Sigrún. Flugferðin var til Rúmeníu og hittu stöllurnar hóp Rúmena á flugvellinum. Þær segja það hafa verið létti hversu rólegur hópurinn var, mun rólegri en þær sjálfar. „Þetta var samt orðið svo mikið ástand, allir farþegarnir lágu á gólfinu sofandi og við vorum búnar að vera í sólarhring í einhverju ástandi,“ segir Magnea. „Síðan tókum við loksins flug í mjög lítilli og gamalli flugvél, fyrst til Egyptalands í og stoppuðum þar. Svo í fjóra tíma til Rúmeníu svo þetta voru níu tímar í vélinni og átján tímar af þroti.“ Geri sér nú grein fyrir áfallinu Þær voru því loksins komnar af átakasvæðinu og því fylgdi gríðarlegur léttir. Við tók ferðalag til Bangkok og hyggjast vinkonurnar halda heimsreisunni áfram. Eftir sitji í þeim ástandið í Dúbaí þegar viðvörunarbjöllurnar fóru að óma. „Það fóru bara einhver flug úr Dúbaí, það veit enginn hvernig næstu plön eru og fólk var öskrandi á hótelinu þegar viðvörunarbjöllurnar hringdu á hótelinu í Dúbaí. Við erum svo ánægðar núna með að vera algjörlega komnar út úr aðstæðunum,“ segir Sigrún. „Ég held núna að áfallið sé rétt að koma því þegar þú ert í aðstæðunum er svo erfitt að vera að hugsa um alla erfiðu hlutina en núna þegar maður hugsar til baka og talar meira við fólkið sitt áttar maður sig á því hvað var í gangi,“ segir Magnea. Þær eru komnar núna til Taílands og eftir viku hefst bókað ferðalag þeirra á ný.
Íslendingar erlendis Íran Bandaríkin Sameinuðu arabísku furstadæmin Óman Rúmenía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Fleiri fréttir Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna Sjá meira