Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag Birgir Olgeirsson skrifar 3. mars 2026 16:20 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Anton Brink Gera má ráð fyrir að utanríkisráðherra kynni þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið fyrir ríkisstjórn á föstudag.
Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra við fréttastofu að loknum fundi ríkisstjórnar í morgun. „Þetta er bara allt að koma og það má gera ráð fyrir að ég kynni þingsályktunina á föstudaginn fyrir ríkisstjórn og þá verða þingflokkar ríkisstjórnarinnar kallaðir saman.“ Þegar hún var spurð hver forsenda þjóðaratkvæðagreiðslunnar ætti að vera, það er að segja hvort kosið verði um áframhaldandi aðildarviðræður á grundvelli umsóknar sem ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna lagði fram árið 2009, eða um nýja aðildarumsókn á grundvelli nýrra samningsmarkmiða svarar Þorgerður að það liggi fyrir að umsóknin frá 2009 sé í fullu gildi. Ríkisstjórn er skipuð Samfylkingunni, Viðreins og Flokki fólksins. Vísir/Vilhelm Áhöld eru um hvort umsóknin sé í raun gild. Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra, sendi bréf til Evrópusambandsins árið 2015 þar sem tilkynnt var að ekki ætti lengur að líta á Ísland sem umsóknarríki. Urslua von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði á blaðamannafundi á Íslandi í fyrra að umsókn Íslands um aðild að ESB væri enn gild. „Það náttúrlega liggur fyrir að umsóknin síðan 2009, hún er í fullu gildi,“ segir Þorgerður Katrín.Hún segir að sér þyki vænt um að heyra að fólk vilji setja fram samningsmarkmið. „Af því í hina röndina þá eru þeir sem eru mest mótfallnir að segja að það sé ekki um neitt að semja. Auðvitað er um margt að semja, samningsmarkmið Íslands eru skýr að mínu mati, að við þurfum að verja stöðu Íslands í þessum gjörbreytta heimi. Við þurfum að tryggja efnahagslegar varnir Íslands líka í tengslum við þetta og við þurfum að sjálfsögðu að hafa yfirráð yfir okkar fiskveiðiauðlindum, það er algjört prinsippatriði.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Viðreisn Utanríkismál Tengdar fréttir Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leggur nú lokahönd á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um samningaviðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands. Hún segir stríðið í Íran geta haft veruleg áhrif á Íslendinga og að borgaraþjónustan aðstoði nú fjölda Íslendinga erlendis vegna stríðsins. 2. mars 2026 09:12 Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Fleiri fréttir Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Sjá meira
Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leggur nú lokahönd á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um samningaviðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands. Hún segir stríðið í Íran geta haft veruleg áhrif á Íslendinga og að borgaraþjónustan aðstoði nú fjölda Íslendinga erlendis vegna stríðsins. 2. mars 2026 09:12