Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. mars 2026 10:57 Susan Sarandon var heiðruð á Goya-verðlaunahátíðinni um helgina og ræddi á blaðamannafundi um það hvernig stuðningur hennar við Palestínu varð til þess að hún hætti að fá tækifæri í Hollywood. Getty Bandaríska leikkonan Susan Sarandon segir umboðsskrifstofuna UTA hafa látið hana róa eftir að hún lýsti yfir stuðningi við Palestínu og síðan þá hafi reynst ómögulegt að fá hlutverk í Hollywood.
Sarandon var stödd á Spáni um helgina til að taka við viðurkenningu á Goya-verðlaunahátíðinni sem var haldin í Forum-byggingunni í Barcelona. Á blaðamannafundi ræddi Sarandon um yfirlýstan stuðning sinn við Palestínu og vandræðin sem hafa fylgt honum. Sarandon mætti á þónokkur mótmæli til stuðnings Palestínu árið 2023. Á einum slíkum fundi sagði hún: „Það eru margir hræddir við að vera gyðingar í dag og fá að finna fyrir því hvernig það er að vera múslimi í þessu landi.“ Hún baðst seinna afsökunar en var þrátt fyrir það látin róa af umboðsskrifstofunni United Talents Agency, sem er ein sú stærsta í heiminum. „Ég var rekin af umboðsskrifstofunni minni fyrir að mótmæla og tala opinskátt um Gasa, fyrir að biðja um vopnahlé og það varð ómögulegt fyrir mig að vera í sjónvarpinu. Ég veit ekki hvort það hefur breyst nýverið en ég gat ekki gert neinar stærri myndir, ekkert tengt Hollywood,“ sagði hún á blaðamannafundinum. Táraðist yfir stöðunni Sarandon samdi við tvær nýjar umboðsskrifstofur, United Agents í Bretlandi og Do MGMT á Ítalíu, og hún hafi aðallega unnið utan Bandaríkjanna síðan þá. „Ég var að leika í mynd á Ítalíu og lék í leikriti í Old Vic [í Lundúnum] í nokkra mánuði. Ítalskur leikstjóri var að ráða mig en var sagt að gera það ekki. Svo núna sérhæfi ég mig í pínulitlum sjálfstæðum myndum með leikstjórum sem hafa ekki leikstýrt áður og myndum í Evrópu eða Ítalíu. Það er aðalástæðan fyrir því að ég hef ekki verið að vinna jafnmikið,“ sagði leikkonan. Susan Sarandon táraðist þegar hún talaði um Palestínu.Getty Sarandon lék í fjórum myndum árið 2024 og einni árið 2025 sem voru allar teknar upp á fyrri hluta árs 2023 áður en UTA losaði sig við hana. Nýjustu fjórar kvikmyndirnar með Sarandon eru núna í eftirvinnslu, þar á meðal hin ítalska The Echo Chamber og sjálfstæðu myndirnar Unmerciful Good Fortune, Exit Right og The Accompanist sem er leikstjórnarfrumraun leikarans Zach Woods. Sarandon var mjög tilfinningarík á fundinum, táraðist og talaði um „styrk og siðferðislegan skýrleika“ spænsku ríkisstjórnarinnar vegna stuðnings hennar við Palestínu síðustu ár. „Að sjá stuðning Spánar og Spánarforseta við Gasa og að leikarar eins og Javier Bardem stígi fram með sterkri röddu er mikilvægt fyrir okkur í Bandaríkjunum,“ sagði leikkonan. Slíkt sæist ekki né heyrðist í Bandaríkjunum. „Mér finnst persónulega að útrýming palestínsku þjóðarinnar sé hryllilegur glæpur og ég skammast mín að vera að borga fyrir það,“ sagði hún jafnframt.
Hollywood Bíó og sjónvarp Spánn Bandaríkin Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Fleiri fréttir Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Sjá meira