Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Elín Margrét Böðvarsdóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa 27. febrúar 2026 19:52 Elimar Hauksson, lögmaður HH Húsa, telur ljóst að borgin sé skaðabótaskyld og útsvarsgreiðendur í Reykjavík muni þurfa að borga brúsann. Vísir/Vilhelm/Arnar Lögmaður telur Reykjavíkurborg hafa bakað sér margra milljóna skaðabótaskyldu í kjölfar uppsagnar verktaka við Ölduselsskóla. Engar upplýsingar sé að fá um ástæðuna. Loka þurfti skólanum vegna öryggismála eftir uppsögnina. Borgin biðst afsökunar á því hvernig staðið var að málinu.
Síðastliðna sex mánuði hefur verktakafyrirtækið HH Hús unnið að framkvæmdum við Ölduselsskóla, meðal annars vegna myglu og rakaskemmda. Vikulega var haldinn verkfundur milli verktaka og verkkaupa, sem er borgin. Líkt og venjulega mættu fulltrúar beggja í hús á miðvikudag á það sem átti að vera eðlilegur stöðufundur. Á þeim fundi var verktakanum hins vegar fyrirvaralaust sagt upp. Fundurinn fór fram á kaffistofu kennara og urðu því starfsmenn skólans vitni að rifrildi milli verktakans og borgarinnar í kjölfar uppsagnarinnar. Borgin biðst afsökunar „Það var í öllu falli bara illa að því staðið, því miður, og óvarfærið. Það er kannski tvíþætt, upplýsingagjöf var enginn og fundurinn fer fram í viðurvist kennara og starfsfólks og eðlilega draga þau ályktanir af því sem að þau heyra þar og við hörmum það mjög og getum ekki annað gert en að biðjast afsökunar á því,“ segir Guðni Guðmundsson, skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg. Í gær, degi eftir uppsögnina, mætti svo verktakinn og fjarlægði öll sín tæki og tól, þar á meðal girðingu við skurð sem er á lóð skólans. Við það skapaðist hættuástand og þurfti að loka skólanum í gær og í dag. Nýr verktaki hefur tekið við og skólinn verður opnaður á ný á mánudag og framkvæmdir fara fram samhliða skólastarfi. Ástæða uppsagnarinnar er sögð vera að HH Hús hafi ekki uppfyllt gæðakröfur við frágang á verkinu og ekki verið brugðist nægilega vel við athugasemdum. Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lögmaður HH Húsa kveðst þó ekki hafa fengið nákvæmari útskýringar en það. „Nú er staðan sem sagt þannig, ég er búinn að fara í gegnum verkfundargerðir á þessu verki og venju samkvæmt þá eru haldnir verkfundir vikulega og ég er búinn að vera að vinna mig í gegnum þetta, það verður bara ekki séð á neinum þessara verkfunda að fundið hafi verið að neinu er varðar verktöku umbjóðenda míns sem getur varðað því að honum sé fyrirvaralaust sagt upp þessu verki,“ segir Elimar Hauksson, lögmaður HH Húsa. Til hafi orðið viðvarandi viðskiptasamband milli verkkaupa og verktaka. „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar. Það er til dæmis verið að finna að því að múrverkamenn séu ekki með nafnspjöld á verkstað. Það náttúrlega bara eðli málsins samkvæmt er ekki þannig, en það er hins vegar reynt að bæta úr því. Fundið að því að fólk hafi kannski ekki verið með hjálma, á það bent að sé ekki hjálmaskylda og bókað í fundargerð að umbjóðandi minn ætli hins vegar að skylda alla til þess að vera með hjálma. Þetta eru svona atriði sem er búið að vera að finna að. Algjörlega fráleitt að ætla að byggja á því að það sé einhver veruleg vanefnd, og ekki búið að hóta riftun á samningi í einni einustu fundargerð. Þetta kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ segir Elimar. Foreldrafélagið harmar að borgin hafi vanrækt upplýsingaskyldu Í tilkynningu frá Foreldrafélagi Ölduselsskóla vegna framkvæmda við skólann, sem fréttastofa hefur undir höndum, leggur foreldrafélagið áherslu á að öryggi og starfsumhverfi nemenda og starfsfólks skólans verði tryggt. Tilkynninguna í heild sinni má sjá hér að neðan. „Foreldrafélag Ölduselsskóla leggur ríka áherslu á að styðja skólastjórnendur og starfsfólk skólans í þeim verkefnum sem tengjast framkvæmdum við skólann. Mikilvægt er að starfsumhverfi og öryggi bæði starfsfólks og nemenda sé tryggt á meðan framkvæmdum stendur. Foreldrafélag Ölduselsskóla harmar að Umhverfis- og Skipulagsráð Reykjavíkurborgar hafi ekki sinnt upplýsingaskyldu við stjórnendur skólans sem endaði í óþarfa röskun á skólastarfi fimmtudaginn 26. og föstudaginn 27. febrúar. Við væntum þess að Reykjavíkurborg tryggi framvegis markvissara upplýsingaflæði, betra samráð og skýrara verklag svo öryggi, velferð og samfella í skólastarfi verði ávallt í forgangi á meðan framkvæmdum stendur. Jafnframt viljum við taka fram að stjórnendur skólans hafa lagt sig alla fram við að halda uppi sem eðlilegustu skólastarfi í krefjandi aðstæðum vegna framkvæmda með hag nemenda og starfsmanna að leiðarljósi. Við skorum á Reykjavíkurborg að breyta verklagi og auka stuðning við skólastjórnendur sem starfa við skóla þar sem viðamiklar endurbætur fara fram. Við ítrekum að sú staða sem nú er uppi er afleiðing þess að viðhald skólahúsnæðis hefur um árabil verið vanrækt og ekki sinnt með fullnægjandi hætti. Það er brýnt að Reykjavíkurborg axli ábyrgð, bæti verklag sitt og tryggi markvissara viðhald og stuðning svo slíkt ástand skapist ekki aftur, hvorki með tilliti til öryggis né velferðar nemenda og starfsfólks.“
Skóla- og menntamál Reykjavík Byggingariðnaður Stjórnsýsla Grunnskólar Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Sjá meira