Kveður Þorgerði og snýr sér að Guði Árni Sæberg skrifar 27. febrúar 2026 10:40 Aðalsteinn Leifsson er hættur sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Vísir/Ívar Fannar Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, hefur ákveðið að láta af störfum eftir aðeins eitt ár í starfi. Hann bauð sig fram í oddvitasæti Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar en laut í lægra haldi fyrir Björgu Magnúsdóttur. „
Eftir viðburðaríkt og skemmtilegt ár í utanríkisráðuneytinu hef ég ákveðið að láta af störfum sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Ég hef virkilega notið samstarfsins við Þorgerði Katrínu og ég er þakklátur fyrir það traust sem hún hefur sýnt mér, m.a. með því að gefa mér færi á að leiða vinnuna við mótun fyrstu formlegu stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum sem formaður samráðshóps þingmanna. Það verkefni gekk mikið betur og mikið hraðar en bjartsýnasta fólk þorði að vona. Þorgerður Katrín hefur beðið mig að fylgja því eftir sem varaþingmaður þó að ég fari úr ráðuneytinu og ég mun að sjálfsögðu gera það,“ segir Aðalsteinn í færslu á Facebook. Ætlar að einbeita sér að guðfræðinni Hann segir ástæðuna fyrir starfslokunum líklega koma flestum nema hans nánustu á óvart. „Staðreyndin er að ég vil gefa mér meira svigrúm til sinna verkefni sem byrjaði sem lítið áhugamál en er orðið að ástríðu. Það er er guðfræðinám í Háskóla Íslands. Ég hef satt að segja reynt að streitast á móti, enda er þetta tómt vesen(!) en það kallar á mig að fara „alla leið“ og ljúka embættisprófi í fyllingu tímans.“ Samhliða því muni hann veita ráðgjöf í samningaviðræðum og lausn deilumála og að kenna samningatækni og sáttamiðlun. Sem kunnugt er var Aðalsteinn ríkissáttasemjari um nokkurra ára skeið. „Ég fæ stöðugt beiðnir um að veita þjálfun og ráðgjöf í hvoru tveggja en hef ekki haft mikinn tíma til þess og hlakka til að geta brugðist oftar jákvætt við og aðstoðað fólk, stofnanir og fyrirtæki samhliða náminu. Þannig get ég vonandi hjálpað til og átt fyrir salti í grautinn í leiðinni. Ég skrifaði bók um samningatækni sem er notuð í öllum háskólunum og er núna að vinna að bók um sáttamiðlun, með tveimur frábærum meðhöfundum.“ Gefur kost á sér Aðalsteinn tók sér launalaust leyfi frá störfum aðstoðarmanns um frá og með miðjum desember til þess að einbeita sér að kosningabaráttu í aðdraganda prófkjörs Viðreisnar í borginni, sem fram fór þann 31. janúar síðastliðinn. Björg Magnúsdóttir fór með sigur af hólmi og hlaut 48 prósent atkvæða. Aðalsteinn hafnaði í öðru sæti með 27,9 prósent. Athygli vakti að í kjölfar prófkjörsins hóf Aðalsteinn ekki strax störf í utanríkisráðuneytinu. Síðast í gær hafði Vísir samband við hann til þess að spyrja út í það hvort ekki styttist í endurkomu hans í ráðuneytið. Þá sagði hann óvissu ríkja um framhaldið. „Ég geri mér grein fyrir að þetta vekur spurningar um mögulega þátttöku mína á lista Viðreisnar í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík, þar sem ég var í öðru sæti í prófkjöri. Ég gef að sjálfsögðu kost á mér en kosningin var ekki bindandi nema í fyrsta sæti og uppstillingarnefndin, sem hefur málið í höndum sér, mun skila niðurstöðu fljótlega. Lífið er núna. Lifið heil!“ segir Aðalsteinn nú á Facebook. Fréttin hefur verið uppfærð.
Viðreisn Tímamót Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Trúmál Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Fleiri fréttir Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Sjá meira