Subterranean kemur saman í fyrsta sinn í áratugi Lovísa Arnardóttir skrifar 27. febrúar 2026 10:03 Hljómsveitina skipa þau Karl Kristján Davíðsson, eða Kalli Youze, Magnús Jónsson eða Gnúsi Yones, Ragna Kjartansdóttir eða Cell 7og Frew Elfineh Taha eða Black Fist. Aðsend Subterranean kemur saman á sviði í fyrsta sinn eftir áratugahlé á tónleikum Mobb Deep í KR-heimilinu þann 24. mars. Auk þeirra koma fram í upphitun Afkvæmi guðanna, Emmsjé Gauti, Saint Pete og Birnir.
Hópurinn skipaði mikilvægan sess í íslenskri hipphoppsögu og hafði veruleg áhrif á mótun senunnar á sínum tíma. Subterranean gaf út sína fyrstu plötu, Central Magnetizm, árið 1997 sem markaði skil í tónlistarsögu Íslands sem ein af fyrstu hiphoppútgáfum á Íslandi. Í kjölfar útgáfunnar kom lagið My style is phreaky út á safnplötunni Wide Angles sem gefin var út í London og dreift víðs vegar um heim. Listamenn á safnplötunni voru meðal annars De La Soul, Mos Def, Alice Russel, Grap Luva, Pharoeh Monch og J-Live. Subterranean kemur fram ásamt fleirum í upphitunaratriði tónleikanna sem er í höndum samstarfsverkefnisins REW. REW er skipað þeim Benna B-Ruff, Kjartani Trauner og Gísla Galdri og sjá þeir, ásamt fleirum, um upphitun á tónleikunum. Í tilkynningu segir að um sé að ræða samfellda sviðssyrpu þar sem hljóð og sjónræn upplifun mynda eina heild með gömlu og óséðu efni í bland við nýtt. Upphitunaratriðið á svo að leiða tónleikagesti inn í hljóðheim Mobb Deep. Benni B-Ruff og Kjartan ásamt Gísla Galdri skipa REW. Aðsend Listamennirnir sem koma fram í upphitunarsyrpu REW eru: Emilía Hugrún Daron Karl Alexander Jarl Class B Afkvæmi Guðanna ft: Emmsjé Gauti Saint Pete Byrkir B Birnir Subterranean Nafnið REW vísar til Rewind-takkans sem margir þekkja frá dögum kassettu- og VHS-tækja. Aðalhlutverk REW-takkans; að spóla til baka, fellur vel að samstarfsverkefni þeirra Benna B-Ruff og Kjartans Trauners en verkefnið gengur út á að vinna með hljóð- og myndheim frá gullárum „næntísins” og kafa ofan í fortíðina á sama tíma og leitast er við að búa til nýjar tengingar við nútímann. REW hefur verið í þróun í nokkur ár og hefur á þeim tíma hitað upp fyrir m.a. DJ Shadow, Talib Kweli og Pharcyde. Miðasala fer fram á vef Stubb.
Tónleikar á Íslandi Reykjavík Tónlist Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Sjá meira