„Ég var að fatta að þú ert edrú“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. febrúar 2026 10:25 Guðrún Svava dró Patrek Jaime með sér niður í bæ í nýjasta þættinum af Gugga fer á djammið. Gugga í gúmmíbát kíkti á djammið með áhrifavaldinum Patreki Jaime um daginn. Þau settu sig í óvæntar stellingar og fóru aftur fyrir barborðið þar sem þau blönduðu sterka drykki, grínuðust og Gugga stalst í vodkann.
Eftir smávegis janúarpásu er Gugga í gúmmíbát snúin aftur í fimmta þættinum af Gugga fer á djammið og nú fékk hún samverkamann sinn á FM957 til að kíkja út á lífið. „Við ætlum að reyna að vinna á bar,“ sagði Gugga í byrjun þáttarins en sagði svo við Patek: „Ég var að fatta að þú ert edrú. Er ekki smá skrítið að ég sé að taka þig með?“ Gugga og Patti eru á FM957 alla föstudaga. „Af hverju? Ég er ekki að fara að drekka af barnum,“ sagði Patrekur. „Má ekki taka skot með hinum?“ spurði Gugga þá. „Jú, ef þú borgar fyrir það. En þú mátt ekki vera fyrir aftan að drekka úr flöskunni.“ Gugga og Patrekur kláruðu svo útvarpsþáttinn sinn áður en Gugga, algjörlega ginnkeypt fyrir nýjustu fegurðartrendum, fór í varafyllingu. „Ég verð að fara í varafyllingar áður en ég fer að djamma, er það galið?“ Sysktini eða kærustupar Gugga og Jaime klæddu sig síðan upp í djammklæðnaðinn, fóru niður í bæ og skelltu sér aftur fyrir barborðið. Fyrsta mál á dagskrá var að fá sér skot af líkkjör og síðan blanda í svokallaða Gúmmí-könnu með vodka, grænni límónu (sem þurfti að bíta í sundur), ástaraldinssafa og Prosecco. Patrekur laumaði inn í blandið óviðeigandi neðanbeltisbrandara um svarta hljóðnema sem er ekki hægt að endurtaka hér. Blandið heppnaðist vel og fór til kvennahóps á staðnum, bjórdrykkjumenn fengu þó ekki eins góða meðferð. Jaime og Gugga héldu síðan áfram að dæla drykkjum í gesti, grínast og rifja upp gamla tíma líkt og sjá má í spilaranum hér að neðan. „Við erum systkini,“ sagði Gugga eftir langa vakt. „Ó, ég hélt við værum kærustupar,“ svaraði Patrekur um hæl.
Gugga fer á djammið Reykjavík FM957 Samkvæmislífið Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira