Trump setti Ólympíugullið um hálsinn: „Ég mun ekki skila því aftur“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2026 23:15 Donald Trump setti Ólympíugullið hans Matthew Tkachuk um hálsinn á sér. @MargoMartin47 Donald Trump er orðinn þekktur fyrir að „eigna“ sér verðlaun sem aðrir vinna og enn eitt dæmið um það er síðan í nýjustu heimsókn meistaraliðs í Hvíta húsið.
Ólympíugullverðlaunahafinn Matthew Tkachuk spurði hvort Donald Trump Bandaríkjaforseti vildi setja á sig Ólympíugullverðlaunin. „Já, algjörlega. Ég mun ekki skila því aftur,“ svaraði bandaríski forsetinn. „Ég skipti þeim fyrir penna,“ sagði Tkachuk, framherji Florida Panthers og bandaríska landsliðsins í íshokkí. „Hefði aldrei trúað því að ég myndi bera þetta“ Karlalandslið Bandaríkjanna í íshokkí var hyllt af Donald Trump í Hvíta húsinu. Það var í því samhengi sem hann, sitjandi við skrifborðið sitt, fékk Ólympíugullið um hálsinn. „Þetta er flott. Ég hefði aldrei trúað því að ég myndi bera þetta,“ sagði Trump. Í ræðu sinni um stöðu ríkisins voru gullhetjur Bandaríkjanna heiðraðar og fengu tveggja mínútna standandi lófaklapp frá bæði Repúblikönum og Demókrötum. Þvílíkt ótrúlegt afrek sem þið unnuð „Ég vil þakka ykkur öllum, þvílíkt ótrúlegt afrek sem þið unnuð. Þið eruð sérstakir meistarar,“ sagði Trump. Matthew Tkachuk has @POTUS put on his gold medal! “I’m not giving it back” 🤣 pic.twitter.com/QAR03fOzoe— Margo Martin (@MargoMartin47) February 24, 2026 Bandaríski forsetinn tilkynnti einnig að kvennalandslið Bandaríkjanna í íshokkí, sem einnig vann Ólympíugull, muni bráðlega heimsækja Hvíta húsið. Þær höfðu afþakkað boð um að vera viðstaddar vegna tímasetningar ræðunnar. Fékk æðstu borgaralegu viðurkenningu landsins Stórstjarnan og markvörðurinn Connor Hellebuyck frá Winnipeg Jets fékk einnig að vita að hann muni hljóta Frelsisorðu forsetans (Presidential Medal of Freedom), æðstu borgaralegu viðurkenningu landsins. „Ég er með frábæran varnarmálaráðherra, markvörðinn. Stórir íþróttamenn hafa fengið orðuna, þeir allra stærstu og mér finnst hann eiga það skilið,“ sagði Trump. Hokkíhetjurnar fengu allar að koma inn á sporöskjulaga skrifstofu forsetans þar sem þær tókust í hendur við hann. „Ég þekki hvern einasta ykkar. Ég þekki hvern einasta ykkar. Frábærir strákar,“ segir Donald Trump. Fimm leikmenn afþökkuðu Fyrir tvöfalda Stanley Cup-meistarann Matthew Tkachuk var þetta þriðja heimsóknin á rúmum tólf mánuðum. – Gaman að sjá þig aftur, segir Matthew Tkachuk. Fimm afþökkuðu boðið Fimm af 25 leikmönnum afþökkuðu boðið: Kyle Connor, Jake Guentzel, Jackson LaCombe, Brock Nelson og Jake Oettinger. Auk þess vantaði Auston Matthews, Clayton Keller og Dylan Larkin við ræðuna til þjóðarinnar í þinghúsinu. Brock Nelson rökstuddi fjarveru sína með því að hann vildi snúa aftur til fjölskyldu sinnar. Kyle Connor vildi undirbúa sig fyrir miðvikudagsleikinn með Vancouver Canucks. Bandaríkin unnu sitt fyrsta Ólympíugull í íshokkí karla síðan „Miracle on Ice“ í Lake Placid árið 1980.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Íshokkí Donald Trump Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjá meira