Lesblinda og prófamenning Snævar Ívarsson skrifar 24. febrúar 2026 11:02 Meðal foreldra og skólafólks fer nú fram mikil umræða um fyrirhuguð stöðu- og framvindupróf sem leggja á fyrir nemendur nú í mars næstkomandi. Undanfarið hafa margir foreldrar og jafnvel kennarar haft samband við Félag lesblindra og lýst yfir áhyggjum sínum enda margt óljóst um það hvernig staðið verður að málum. Okkur hjá Félagi lesblindra á Íslandi hefur ekki verið kynnt sérstaklega hvernig staðið verður að þessum fyrirhuguðu stöðu- og framvinduprófum en við höfum að sjálfsögðu skoðað málið vel enda eiga okkar skjólstæðingar mikið undir. Það er ekki ætlun Félags lesblindra að leggja stein í götu breytinga á námsmati en við lítum svo á að enn sé mikið starf óunnið við að kynna nýtt og breytt fyrirkomulag. Um leið hljótum við að spyrja: Hvers vegna á að leggja samræmd próf fyrir nemendur sem þegar hafa lesblindugreiningu? Hvers vegna á að prófa nemendur með íslensku sem annað mál, sem enn eru að byggja upp tungumálafærni sína? Slík framkvæmd mun óhjákvæmilega skekkja heildarmyndina og það sem er enn mikilvægara: Hún getur aukið kvíða og vanlíðan hjá börnum sem eru nú þegar í viðkvæmri stöðu. Við skulum muna að öll börn eru einstök og prófakerfi mega ekki hundsa það. Prófmenning og álag Vitað er að lesfimipróf eru þegar í gangi og kennarar hafa því nokkuð góða yfirsýn yfir stöðu nemenda. Því hljótum við að spyrja okkur hvort við séum að bæta við mælingum eða hreinlega að bæta við álagi? Það sem veldur okkur hjá Félagi lesblindra mestum áhyggjum er menningin í kringum próf. Þó að þau eigi að vera einstaklingsbundin og eingöngu til stuðnings kennurum, þá vitum við hvernig veruleikinn er. Niðurstöður berast heim, umræða fer af stað í skólanum og börn bera sig saman. Þau sem ekki vilja segja frá, þau „hljóta að hafa staðið sig illa“. Þarna byrjar samanburðurinn og þar getur sjálfsmyndin, sem oft er brothætt meðal þeirra lesblindu, fengið högg. Á unglingsárunum vaknar sjálfsmynd ungmenna og þau fara að velta fyrir sér spurningum eins um hverjir séu styrkleikar og veikleikar þeirra og hvað öðrum finnist um þá. Staða og gengi í skólanum getur þar skipt sköpum og mælingar á forsendum prófmenningar eru ekki að bæta úr. Skólar get alíka verið svo mikið meira en bara próf. Eyðileggja skólar sköpunargáfu? Margir hafa haft dálæti á þeim merka skólamanni Sir Ken Robinson sem lést fyrir nokkrum árum. Hann benti á að skólakerfi víða um heim hafi verið mótuð fyrir allt annan tíma, tíma iðnbyltingar þar sem samræmi og staðlaðar mælingar voru í forgrunni. Í frægu erindi sínu Eyðileggja skólar sköpunargáfu (Do Schools Kill Creativity?) lagði hann áherslu á að börn fæðist með ríka sköpunargáfu og forvitni en lendi svo í skólakerfum sem leggja ofuráherslu á próf og sú stöðlun sem þeim fylgja geti kæft þessa sjálfssprottnu sköpunargáfu. Það eru einföld sannindi að meðan allt hefur breyst telst sólarhringurinn enn vera aðeins 24 tímar og er ekkert að fara að breytast. Samfélagið hefur hins vegar tekið stakkaskiptum. Börn lifa í stafrænum heimi, upplýsingaflæði er gífurlegt og leiðir til náms eru fleiri en nokkru sinni fyrr. Því þarf skólinn að þróast með þessum breytingum og þeim tækifærum sem þeim fylgja og ekki festast í prófamenningu sem skilur suma eftir. Skóli sem tekur mið af fjölbreytileika Við hjá Félagi lesblindra viljum skóla sem tekur mið af fjölbreytileika. Skóla sem viðurkennir að börn eru ólík, hafa mismunandi styrkleika, fara ólíkar leiðir við að læra og búa yfir margvíslegri og mismunandi hæfni. Það er einfaldlega ekki hægt að troða öllum í sömu skóstærðina. Við óttumst að aukin áhersla á próf geti aukið brottfall til lengri tíma. Börn sem endurtekið upplifa sig „undir meðallagi“ fara að trúa því að þau séu það en auðvitað á enginn að ganga út úr skóla með þá tilfinningu. Við köllum því eftir yfirvegaðri umræðu um tilgang, framkvæmd og áhrif þessara prófa, sérstaklega fyrir þá nemendur sem eru með greiningar eða eru að tileinka sér íslensku sem annað mál. Skólinn á að vera vettvangur forvitni og sköpunar en ekki stöðugrar og takmarkandi mælingar. Við stöndum með börnunum og við stöndum með kennurum sem vilja fá svigrúm til að mæta hverju barni þar sem það er statt. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags lesblindra á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Lögmaður á villigötum – skák og mát… Agnar Þór Guðmundsson Skoðun Stórslys á Suðurlandsbraut Lárus Bl. Sigurðsson Skoðun Stærsti foss jarðar er á landgrunni Íslands Júlíus Valsson Skoðun Áhrif endurgjafar á virkni heilans Hanna Steinunn Steingrímsdóttir Skoðun Hækkun örorkubóta eða raunverulegur stuðningur? Arnar Helgi Lárusson Skoðun Um tæknirisana og stjórnlausa bruðlið Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Ósýnilegi reikningurinn í grunnskólum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hjálp, það á að breyta malbikinu mínu! Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun ESB- umræðan á Íslandi er orðin óþolandi léleg Gunnar Einarsson Skoðun Þáttaskil í umræðu um blóðmerahald Árni Stefán Árnason Skoðun Skoðun Skoðun „Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Hjálp, það á að breyta malbikinu mínu! Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hækkun örorkubóta eða raunverulegur stuðningur? Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Léttum á vegunum og eflum strandsiglingar Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þáttaskil í umræðu um blóðmerahald Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Hamingja á stafrænum tímum Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ósýnilegi reikningurinn í grunnskólum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Um tæknirisana og stjórnlausa bruðlið Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Lögmaður á villigötum – skák og mát… Agnar Þór Guðmundsson skrifar Skoðun Áhrif endurgjafar á virkni heilans Hanna Steinunn Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Meðvirka fjölskyldan Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sérkennilegur samhljómur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Samstarf um grænni framtíð í borginni okkar Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar Skoðun Þyrnirós Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun „Óvægið“ að vitna í lög? Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Tenging almannatrygginga við launavísitölu – ófyrirséðar afleiðingar fyrir börn og jöfnuð Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Hver hefði haldið? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Nú á að hafa áhrif á héraðsdóm og Alþingi og freista þess að fella ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Frádráttarbært dýraníð Jón Kaldal skrifar Skoðun Ósýnilegi reikningurinn í grunnskólum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun ESB- umræðan á Íslandi er orðin óþolandi léleg Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Veik og þreytt dag eftir dag Nanna Hlín Halldórsdóttir,Hugrún Vignisdóttir,Anna Sigrún Ingimarsdóttir,Elísa Ósk Línadóttir,Freyja Imsland skrifar Skoðun Innleiðingarblekkingin Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Lög að leysa leikskólavandann? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Er einhver í áskrift að peningunum þínum? Vésteinn Örn Pétursson skrifar Skoðun Stöðvum kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris Kristján Þórður Snæbjarnarson,Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra fækkar endó-aðgerðum Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Um gæluverkefnin í Reykjavík Sabine Leskopf skrifar Skoðun Gervigreindin er ekki ógnin. Ábyrgðarlaus notkun hennar er Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Meðgönguþoka: hvað er að gerast í heilanum? Þórhildur Halldórsdottir skrifar Sjá meira
Skoðun „Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar
Skoðun Tenging almannatrygginga við launavísitölu – ófyrirséðar afleiðingar fyrir börn og jöfnuð Lúðvík Júlíusson skrifar
Skoðun Nú á að hafa áhrif á héraðsdóm og Alþingi og freista þess að fella ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar
Skoðun Veik og þreytt dag eftir dag Nanna Hlín Halldórsdóttir,Hugrún Vignisdóttir,Anna Sigrún Ingimarsdóttir,Elísa Ósk Línadóttir,Freyja Imsland skrifar
Skoðun Stöðvum kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris Kristján Þórður Snæbjarnarson,Ragna Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Gervigreindin er ekki ógnin. Ábyrgðarlaus notkun hennar er Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar