Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar 9. júní 2026 14:15 Opinber umræða um íbúðauppbyggingu varðar oftast fjölda íbúða í uppbyggingu, skipulag eða kostnað. Sjaldnar er þó rætt um þann gríðarlega fjölda fólks og fyrirtækja sem kemur að uppbyggingarverkefnunum á einn eða annan hátt. Nýtt íbúðahverfi er í raun með stærri samstarfsverkefnum sem hægt er að koma að og getur kallað á þátttöku allt að 250 starfsgreina frá fyrstu hugmynd að daglegum rekstri hverfisins. Þegar nýtt land er tekið undir íbúabyggð hefst langt og flókið ferli sem nær langt út fyrir sjálfan byggingariðnaðinn. Þar koma saman sérfræðingar í lögfræði, fjármálum, arkitektúr, verkfræði, skipulagsmálum, stjórnsýslu, umhverfisvísindum, iðngreinum og þjónustu. Hver ný íbúð og gata er þannig afrakstur samstarfs fjölda einstaklinga, fyrirtækja og stofnana sem vinna að sama markmiði. Þetta undirstrikar að íbúðauppbygging snýst ekki einungis um húsnæði heldur einnig um atvinnu- og verðmætasköpun. Hver ný íbúð skapar verkefni fyrir fjölda fyrirtækja, styrkir aðfangakeðjur og stuðlar að fjölbreyttum störfum víðs vegar um hagkerfið. Samkvæmt greiningu Samtaka iðnaðarins mælist atvinnuleysi umtalsvert innan byggingariðnaðarins en heildarfjöldi atvinnulausra í greininni er nú tæplega 1.300 og hefur þeim fjölgað talsvert frá því fyrir ári. Fyrirsjáanlegt er einnig að boðuð hækkun skatta mun draga verulega úr íbúðauppbyggingu umfram það sem nú þegar er komið fram. Þessi samdráttur í byggingariðnaði snertir ekki eingöngu húsasmiði, rafvirkja og múrara heldur mun samfélagið allt finna fyrir áhrifum samdráttarins. Uppbygging hefst löngu áður en fyrsta skóflustungan er tekin Áður en framkvæmdir við ný hverfi hefjast þarf að fara fram umfangsmikil undirbúningsvinna. Sveitarfélög, skipulagsfræðingar, veitu- og fjarskiptafyrirtæki, landmælingamenn, lögfræðingar, jarðfræðingar, vistfræðingar og fjölmargir aðrir sérfræðingar meta svæðið og móta forsendur uppbyggingarinnar. Jafnframt þarf að tryggja fjármögnun, framkvæma kostnaðarmat og ganga frá samningum við fjárfesta og lánastofnanir. Þessi fyrstu skref eru oft ósýnileg almenningi en skipta sköpum fyrir framgang verkefnisins. Án þeirra verður hvorki hægt að hefja framkvæmdir né tryggja að uppbyggingin sé sjálfbær til framtíðar. Verkfræði og hönnun móta framtíðarhverfið Þegar skipulagsvinnu og öðrum undirbúningi lýkur tekur við umfangsmikil hönnunarvinna. Arkitektar, byggingarverkfræðingar, landslagsarkitektar, rafmagnsverkfræðingar, umferðarverkfræðingar, vatns- og fráveitusérfræðingar og fjölmargir aðrir koma að því að hanna hverfið í smáatriðum. Á sama tíma þarf að huga að sjálfbærni, orkunýtingu, samgöngum, stafrænum innviðum, fjarskiptum og öryggismálum. Nútímaleg hverfi eru sífellt tæknivæddari og því verða kröfur til sérfræðikunnáttu fjölbreyttari með hverju árinu sem líður. Hundruð starfa á framkvæmdatímanum Þegar framkvæmdir hefjast verður fjölbreytnin enn sýnilegri. Jarðvinnuverktakar, vörubílstjórar, skrúðgarðyrkjumeistarar o.fl. leggja grunn að nýju hverfi. Í kjölfarið taka við húsasmiðir, múrarar, rafvirkjar, pípulagningamenn, suðumenn, blikksmiðir og fjöldi annarra iðnaðarmanna auk verkamanna og iðnnema. Samhliða vinna byggingarstjórar, verkstjórar, öryggisstjórar og gæðastjórar að því að tryggja að verkefnið gangi samkvæmt áætlun og uppfylli allar kröfur um öryggi og gæði. Hverfi verða ekki tilbúin þegar lyklarnir eru afhentir Þótt byggingum sé lokið heldur atvinnusköpunin áfram. Rekstur og viðhald hverfa kallar á starfskrafta til lengri tíma. Þar má nefna húsverði, öryggisþjónustu, garðyrkju- og snjómokstursþjónustu, sorphirðu, rekstur veitukerfa og fjölmörg önnur þjónustustörf. Auk þess bætast við störf í leikskólum, skólum, verslun og heilbrigðisþjónustu þegar ný hverfi taka að fyllast af íbúum. Íbúðauppbygging er efnahagslegt vistkerfi Samkvæmt samantekt á starfsgreinum sem koma að uppbyggingu og rekstri íbúðahverfa getur lítið verkefni með 10–30 íbúðum kallað á þátttöku 60–90 starfsgreina, meðalstór verkefni 90–140 starfsgreina og stærri þróunarsvæði allt að 250 starfsgreina. Þá er sjaldnast litið til áhrifa inn í stofnanir sveitarfélaga, skipulagsyfirvöld, opinbert eftirlit og leyfisveitingar. Loks má velta fyrir sér áhrifum samdráttar í byggingariðnaði á afkomu flutningafyrirtækja og söluaðila á byggingarvörum. Allt eru þetta mikilvægi innviðir sem skapa atvinnu fyrir hundruði skattgreiðenda sem leggja sitt af mörkum í sameiginlega sjóði. Fyrir stjórnvöld er þetta mikilvæg áminning um að skilvirkt skipulags- og leyfisferli, stöðugleiki í rekstrarumhverfi og öflug uppbygging innviða eru ekki aðeins forsenda fyrir fleiri íbúðum heldur einnig fyrir fjölbreytt atvinnulíf, aukna framleiðni, verðmætasköpun og velsæld í íslensku samfélagi. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka rafverktaka og viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húsnæðismál Byggingariðnaður Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar