Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar 15. október 2026 13:32 Nú hefur Trump, forseti Bandaríkjanna sýnt sitt rétta andlit. Hann hefur ákveðið að styðja stríðsrekstur Rússa gegn Úkraínu. Zelensky, forseti Úkraínu telur ákvörðun Trumps um olíukaup af Rússum og takmarkanir á gerfitunglafjarskiptum STARLINK-STARSHIELD kerfisins sem notað er í varnarbaráttu landsins gegn skefjalausum loftárásum Rússa gegn orkuinnviðum og íbúðablokkum vera hrein svik við fyrri loforð bandarískra stjórnvalda um járnvæddan stuðning gegn innrás Rússa. Þá hefur forseti Bandaríkjanna kallað eftir því að Zelensky, forseti Úkraínu víki úr starfi að því að hann vill ekki þóknast óskum Trumps um að láta af árásum á rússneskar olíuhreinsistöðvar. Eftirfarandi er það helsta sem skiptir máli: Olíukaup Trumps munu ekki valda neinum merkjanlegum breytingum á framboði díselolíu í Bandaríkjunum, enda magnið takmarkað og fyrir utan 300.000 tunnur, kemur ekki á markað þar fyrr en eftir þingkosningarnar í nóvember, en hátt verð á eldsneyti er talin ein af ástæðum þess að Trump gerir þennan samning við Pútín. Olíukaupin ganga þvert á fyrri stefnu Bandaríkjanna um viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á meðan innrásarstríð þeirra gegn Úkraínu varir. Þær ná til kaupa og innflutnings á olíu og gasi frá Rússlandi. Þangað til nú. Eftir standa Vesturlöndin og ESB sem hafa heitið því að viðhalda þessum efnahagsþvingunum í þeirri von að það knýji Rússa að samningaborðinu í stríði sem er að verða fimm ára gamalt og fer fram í miðri Evrópu með skelfilegum blóðsúthellingum og eyðileggingu mannvirkja. Takmarkanir bandarískra stjórnvalda á aðgangi að hernaðarhluta STARLINK-STARSHIELD gerfitunglafjarskiptakerfisins kemur í veg fyrir að loftvarnir Úkraínu geti starfað sem skyldi og hafa skotflaugaárásir Rússa á úkraínskar borgir sem koma nú án viðvörunar ollið miklum skaða. Drónaárásir úkraínska hersins á rússnesk skotmörk takmarkast við aðeins 160 km hraða og það gefur auga leið að það er ófullnægjandi til að ná tilætluðum árangri. Spyrja má hvað valdi því að Trump, forseti taki þá ákvörðun að styðja stríðsrekstur Rússa gegn Úkraínu með þessum hætti. Látum bandarísku þingkosningarnar í novémber n.k. liggja á milli hluta. Af hverju leggja Rússum lið á þesum tímapunkti þegar vetur er að ganga í garð og orkuinnviðir Úkraínu eru í rúst og um leið kalla eftir afsögn Zelencky forseta? Nærtækasta skýringin er sú að í olíukaupasamtali Trumps og Pútíns hafi sá síðarnefndi beðið um aðstoð við að koma Úkraínu á kné og forseti Bandaríkjanna ákveðið að verða við þeirri beiðni. Er þá engu skeytt um öryggishagsmuni Evrópu eða samstöðu gegn einræðisríki sem stefnir á yfirráð yfir fyrrum áhrifasvæðumSovétríkjanna. Það hlýtur að vera íslenskum stjórnvöldum áhygguefni að bandamaður sem þau treysta á að komi Íslandi til varnar ef á okkur er ráðist hagi sér með þessum hætti. Skiptir þá engu máli hvað Rubio, utanríkisráðherra segir í kurteisisheimsókn til landsins eða bandarísk hermálayfirvöld láta frá sér fara – sá sem ræður ferðinni dvelur í Hvíta húsinu. Algjör útvistun íslenskra varna við þessar kringumstæður er stórhættulegt fyrir fullveldi og sjálfstæði Íslands. Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Innrás Rússa í Úkraínu Donald Trump Mest lesið Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun