Fyrirmyndir í starfsmenntun Lísbet Einarsdóttir skrifar 23. febrúar 2026 09:17 Menntaverðlaun atvinnulífsins voru afhent nýverið við hátíðlega athöfn. Slík augnablik eru mikilvæg, ekki eingöngu fyrir þau fyrirtæki sem hljóta viðurkenningu, heldur fyrir atvinnulífið í heild sinni. Þau minna okkur á að raunverulegur árangur byggist ekki eingöngu á fjárhagslegum mælikvörðum heldur á þeirri þekkingu, hæfni og menningu sem byggð er upp innan fyrirtækja. Framúrskarandi fyrirtæki Það fyrirtæki sem hlaut verðlaunin í ár, og annað af þeim tveimur sem voru tilnefnd, nefni ég sérstaklega vegna þess að ég þekki vel til þeirra. Þau hafa um árabil sótt í fræðslusjóðinn og verið í reglulegu samtali um uppbyggingu starfsmenntunar, til að mynda hvaða leiðir eru færar hverju sinni þegar kemur að fjármögnun. Í gegnum samtöl, gott samtarf og fjölda umsókna hef ég fengið góða og marktæka innsýn í það hvernig þau vinna markvisst, með skýra sýn og raunverulegan vilja til að byggja upp hæfni alls starfsfólks. Ég veit að þriðja fyrirtækið stendur þeim jafnfætis hvað þetta varðar, enda aðeins þau sem skara fram úr hljóta tilnefningu dómnefndar til verðlaunanna. Fræðsla fyrir alla, jafnræði og breidd Það sem einkennir þessi fyrirtæki er að fræðslan sem fram fer nær til alls starfsfólks, frá almennum starfsmönnum til stjórnenda, að millistjórnendum og sérfræðingum meðtöldum. Þar er ekki um að ræða tilviljunarkennd átaksverkefni fyrir fáa eða eftirá viðbragð við uppákomum, heldur markvissa og skýra uppbyggingu sem styrkir heildina. Slík nálgun skapar jafnvægi, eykur þátttöku og stuðlar að sameiginlegri ábyrgð á árangri. Stefna, greining og mælingar sem grunnur árangurs Fyrirtækin hafa sett sér fræðslu-, starfsmennta- eða menntastefnu og leggja áherslu á þarfagreiningar áður en lagt er af stað. Þau draga upp fræðsluáætlanir á grundvelli þarfagreininga, skilgreina markmið og beita mælikvörðum til að meta árangur. Það sem er mælt, því er hægt að stýra. Þessi faglega nálgun tryggir að fjármunir og tími nýtist sem best og að fræðslan skili raunverulegu virði, bæði fyrir starfsfólk og rekstur. Starfsþróun verður og er leiðarstefið. Starfsmenntun sem fjárfesting til framtíðar Þetta höfum við ítrekað lagt áherslu á í samtali við atvinnulífið, að góð starfsmenntun byggist á stefnu, greiningu, áætlun og mælingu. Að hún sé fjárfesting sem styður við stefnu fyrirtækis og eflir samkeppnishæfni til lengri tíma. Þegar þessi þættir fara saman verður til menning þar sem nám og þróun eru eðlilegur hluti starfsins, ekki viðbót við það. Í síbreytilegu umhverfi, þar sem tæknibreytingar og auknar kröfur kalla á nýja hæfni, er þessi nálgun ekki lengur valkostur heldur nauðsyn. Fyrirtæki sem taka starfsmenntun alvarlega eru betur í stakk búin til að takast á við breytingar, laða að sér hæft starfsfólk og halda því, og verkefnum morgundagsins verður mætt af þekkingu, færni og hæfni. Fyrirmyndir með skýra sýn Menntaverðlaun atvinnulífsins varpa ljósi á fyrirmyndir sem hafa tileinkað sér þessa sýn. Þau sýna að með markvissri vinnu, skýrri stefnu og stuðning er hægt að byggja upp öflugt lærdómssamfélag innan fyrirtækja. Það er fagnaðarefni og jafnframt hvatning til annarra um að stíga sömu skref. Til hamingju öll með verðskuldaðar viðurkenningar. Höfundur er framkvæmdastjóri Starfsafls fræðslusjóðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun