Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. febrúar 2026 10:11 Einar Bárðarson tók við verðlaunum úr höndum Stefáns Einars Stefánssonar. Mummi Lú Bestu íslensku vörumerkin 2025 voru heiðruð í Hörpu í gær fyrir fullum sal þar sem þrjátíu tilnefnd vörumerki fögnuðu sterkri stöðu sinni í íslensku atvinnulífi. Meðal vörumerkja sem voru valin voru vörumerki Ölgerðarinnar og 66°N.
Fullt var út úr dyrum þegar Bestu íslensku vörumerkin 2025 voru heiðruð við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær. Í tilkynningu segir að stemningin hafi verið kraftmikil og jákvæð þar sem leiðtogar úr íslensku atvinnulífi, markaðsfólk, mannauðsfólk og fulltrúar fræðasamfélagsins komu saman til að fagna því sem best gerist í íslenskri vörumerkjastjórnun. Myndir frá hátíðinni má sjá neðst í fréttinni. Alls voru þrjátíu fyrirtæki tilnefnd í ár og það eitt og sér er að hljóta viðurkenningu er mikil viðurkenning, að því er segir í tilkynningu. Í ár var jafnframt bætt við nýjum flokki fyrir vörumerki vinnustaða með færri en fimmtíu starfsmenn sem endurspeglar aukna áherslu á menningu, mannauð og innri styrk fyrirtækja. Viðurkenningarnar eru veittar af Brandr og hafa frá upphafi haft það markmið að varpa ljósi á mikilvægi vörumerkja í rekstri. Vörumerki eru ekki einungis sýnileg ásýnd heldur stefnumótandi eign sem hefur bein áhrif á samkeppnishæfni, arðsemi og langtíma árangur fyrirtækja. Viðurkenningarhafar 2025 Persónubrandr ársins: Einar Bárðarson Besta íslenska vörumerkið á fyrirtækjamarkaði: Ölgerðin Besta íslenska vörumerkið á einstaklingsmarkaði (50+ starfsmenn): 66°N Besta íslenska vörumerkið á einstaklingsmarkaði (49 eða færri starfsmenn): Venja Besta íslenska vörumerki vinnustaðar (50+ starfsmenn): Nova Besta íslenska vörumerki vinnustaðar (49 eða færri starfsmenn): Orkan Faglegt og gagnadrifið val Í tilkynningu segir að valið byggi á vönduðu og gagnadrifnu ferli þar sem styrkur, sérstaða og árangur vörumerkja eru metin út frá skýrum viðmiðum. Að ferlinu komi fulltrúar úr íslensku atvinnulífi og fræðasamfélagi sem tryggja fagmennsku, breidd og trúverðugleika í niðurstöðum. Segir ennfremur að viðburðurinn í Hörpu staðfesti að íslensk fyrirtæki leggi sífellt meiri áherslu á markvissa vörumerkjastjórnun sem lykilþátt í rekstri – og að sterk vörumerki skipti raunverulegu máli. Allir tilnefndir 2025 (Sigurvegarar merktir með feitletrun.) Fyrirtækjamarkaður Arion Ölgerðin Advania Payday Dropp Hoobla Einstaklingsmarkaður – 50 eða fleiri starfsmenn Sky Lagoon Sýn 66°N Lyfja Icewear Bónus Blue Lagoon Einstaklingsmarkaður – 49 eða færri starfsmenn Happy Hydrate Venja Huppa Prís Lava Show Húrra Reykjavík dóttir skin Vörumerki vinnustaðar – 50 eða fleiri starfsmenn Nova Íslandsbanki Blue Car Rental Nox Medical ELKO Sjóvá Vörumerki vinnustaðar – 49 eða færri starfsmenn Orkan ÓX Sahara Plaio Hörður Þórhallsson forstjóri Ósa, Silvía Kristín Ólafsdóttir forstjóri Nova, Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar og Dr. Friðrik Larsen stofnandi Brandr.Mummi Lú Þétt setið. Mummi Lú Íris Mjöll hjá Brandr.Mummi Lú Hörður Ingi Þórbjörnsson hjá Orkunni, Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson í hlaðvarpsþættinum Chess after dark.Mummi Lú Már Wolfgang Mixa Dósent við Háskóla Íslands, Fannar Páll Aðalsteinsson markaðsstjóri 66 og Elín Tinna Loga Framkvæmdarstjóri á Íslandi 66.Mummi Lú Óli Rúnar Jónsson Framkvæmdarstjóri Markaðssviðs Ölgerðarinnar, Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar og Jóhann Már forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Wolt.Mummi Lú Andri Þór Guðmunds, Ölgerðinni. Mummi Lú Sigrún kjartansdóttir forstjóri Mannauður, félag mannauðsfólks á Íslandi með Nova.Mummi Lú Sigrún Kjartans forstjóri Mannauður, félag mannauðsfólks á Íslandi.Mummi Lú Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson markaðsstjóri og Guðrún Finnsdóttir mannauðssérfræðingur hjá NOVA. Mummi Lú
Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira